Þema afmælisársins er Háskólinn á Akureyri - heimur í hnotskurn.
Margt fróðlegt og skemmtilegt verður á dagskrá afmælisárið 2012 og verða upplýsingar um viðburði færðar inn á afmælisvefinn jafnóðum og þær berast. Hægt verður að fylgjast með hvað er á döfinni í hverjum mánuði fyrir sig með því að velja viðkomandi mánuð úr valmyndinni hér til vinstri. Einnig verða viðburðir skráðir í dagatal háskólans jafnt á forsíðu vefsins sem og hér á afmælisvefnum.
Stiklað á stóru í viðburðum ársins 2012:
- Ljósmyndasamkeppni undir yfirskriftinni Líf og störf fólks í Háskólanum á Akureyri.
- Opnaður verður afmælisvefur á vef háskólans með viðburðadagatali afmælisársins og stiklum og myndum úr sögu háskólans.
- Safnað verður gömlum myndum sem tengjast starfsemi háskólans og þeim komið fyrir á afmælisvefnum. Leitað verður til notenda að þeir aðstoði við að nafngreina þá sem eru á myndunum og þar með eignast háskólinn heildstæðara myndasafn um sögu háskólans.
- Gefið verður út dagatal og dreift inn á öll heimili á Akureyri. Dagatalið prýða myndir úr háskólanum og fróðleiksmolar um starfsemi háskólans.
- Gefið verður út afmælisrit sem Bragi Guðmundsson, prófessor við kennaradeild, ritstýrir en auk hans mun fjöldi starfsmanna háskólans leggja til efni í ritið.
- Boðið verður upp á öndvegisfyrirlestra þar sem heimsþekktir vísindamenn flytja opna fyrirlestra um rannsóknir sínar.
- Fræðimenn við háskólann kynna ritverk sín á sérstakri dagskrá í samvinnu við Pennann-Eymundsson.
- Ný stefna Háskólans á Akureyri verður kynnt snemma á afmælisárinu.
- Útbúið hefur verið sérstakt merki sem mun prýða allar auglýsingar tengdar afmælisárinu og einnig allt kynningarefni sem gefið verður út á þessu ári. Í því er vísað til 25 ára afmæli háskólans.
- Haldin verður vegleg hátíð að lokinni brautskráningu árið 2012 þar sem vænst er góðrar þátttöku frá afmælisárgöngum brautskráðra og Góðvinum háskólans.
- Háskólinn á Akureyri og Akureyrarbær, sem fagnar 150 ára afmæli í ár, munu standa saman að viðburði í ágústlok við Íslandsklukkuna.
- Afmælisdag háskólans 5. september ber upp á miðvikudag og af því tilefni verður afmælishátíð og opið hús sunnudaginn 2. september.
- Fullveldishátíð HA 1. desember verður veglegri en vanalega og á málþingi þennan dag verður kastljósinu beint að Háskólanum á Akureyri í fortíð, nútíð og framtíð. Verulegur hluti af dagskrá afmælisársins verður skipulagður af stúdentum, fræðasviðum og öðrum starfseiningum háskólans. Sá hluti dagskrárinnar verður kynntur síðar.
Afmælisnefndin vill virkja sem flesta í að skipuleggja afmælisviðburði og að taka þátt í afmælinu að öðru leyti, jafnt starfsfólk fræðasviða, háskólaskrifstofu og nemendur. Þannig taka þessir aðilar að sér skipulag afmælisdagskrár á tilteknum tímabilum.
| Febrúar | Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri FSHA sér um afmælisdagskrá. | |
| Mars | Heilbrigðisvísindasvið sér um afmælisdagskrá. | |
| Apríl-maí | Viðskipta- og raunvísindasvið sér um afmælisdagskrá á þessu tímabili. | |
| Október | Hug- og félagsvísindasvið sér um afmælisdagskrá. | |
| Nóvember | Háskólaskrifstofa sér um afmælisdagskrá. |


