Í tilefni af 25 ára afmæli Háskólans á Akureyri mun fræðimaður við
háskólann kynna fræðibók mánaðarins einu sinni í mánuði í Eymundsson á Akureyri fram til vors. Fyrsta erindið verður
haldið fimmtudaginn 2. febrúar kl. 17.00. Þá mun Páll Björnsson, dósent við félagsvísindadeild kynna bók
sína Jón forseti allur? sem nýverið hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin. Nánar hér.
Laugardaginn 4. febrúar verður stofnað Barnabókasetur – rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna við Háskólann á Akureyri. Að setrinu standa auk háskólans Amtsbókasafnið og Minjasafnið á Akureyri. Þá eiga Rithöfundasamband Íslands, Samtök barna- og unglingabókahöfunda, IBBY, Félag fagfólks á skólasöfnum og fleiri aðild að setrinu. Nánar hér.
Ath. Afmælishátíðin sem til stóð að halda í Miðborg fimmtudaginn 16. febrúar hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum. Í staðinn verður blásið til hátíðarhaldanna í næstu viku en endanleg dagsetning er ekki frágengin. Ný dagsetning verður auglýst um leið og hún liggur fyrir.
Vert er að benda á að nú stendur yfir sala á sérstaka háskólasýningu á Gulleyjunni hjá LA. Nemendur og starfsfólk HA getur nálgast miða á sérkjörum í miðasölu leikfélagsins eða á skrifstofu FSHA.
Fylgist vel með nýjum dagsetningum vegna afmælishátíðarinnar!
Annað á dagskrá í febrúar:
- Ný stefna Háskólans á Akureyri fyrir 2012-2017 verður kynnt.


