Á afmælisári Háskólans á Akureyri árið 2012 verður efnt til ljósmyndasamkeppni
undir yfirskriftinni: Líf og störf fólks í Háskólanum á Akureyri. Ljósmyndakeppninni verður hleypt af stokkunum 13. janúar
2012 og stendur til 15. nóvember 2012.
Úrslit verða þó ekki kunngjörð fyrr en á 1. des hátíð HA þann 1. desember 2012. Glæsileg verðlaun verða í boði fyrir sigurmyndina en þau verða kynnt nánar síðar.
Öllum er heimilt að taka þátt, myndir í keppnina skal senda inn rafrænt á netfangið ljosmyndasamkeppni@unak.is. Hver og einn keppandi má senda allt að þrjár myndir í keppnina.
Með þátttöku í keppninni veitir ljósmyndari Háskólanum á Akureyri rétt til að nota myndir sem berast í keppnina
endurgjaldslaust í tengslum við afmælishátíð háskólans á árinu 2012 og í kynningarefni í tvö ár eftir að
keppni lýkur. Einnig að prenta myndirnar og hafa til sýnis endurgjaldslaust í tvö ár eftir að keppni lýkur.
Háskólinn á Akureyri mun semja um allar aðrar birtingar beint við viðkomandi ljósmyndara. Eftir að úrslit hafa verið tilkynnt munu
ljósmyndarar hafa fullan rétt til að sýna og eða selja sínar myndir.
Yfirskrift: Líf og störf fólks í Háskólanum á Akureyri
Tímabil: 13. janúar - 15. nóvember
Hvert skal senda mynd: ljosmyndasamkeppni@unak.is
Hámarksfjöldi mynda: 3 stk.
Verðlaunaafhending: 1. desember


