Háskólinn á Akureyri

Gátlisti Erasmus skiptinema á leið út:   1.  Fullgilt vegabréf  Gott er að hafa ljósrit af

Gátlisti fyrir námsdvöl erlendis

Gátlisti Erasmus skiptinema á leið út:  

1.  Fullgilt vegabréf  
Gott er að hafa ljósrit af vegabréfinu meðferðis.

2. Sjúkratryggingar:  
Sótt er um á netinu hjá tryggingastofnun  http://www.tr.is/    og þá er gefið út kort til tveggja ára og sent á lögheimili vikomandi.  Venjulega eru kortin póstlögð daginn eftir umsókn ef allt er í lagi.  
Það fylgir bæklingur öllum kortum og gott er að minna námsmenn á að
skoða reglurnar.  Varðandi athugasemd að sérreglur gildi um námsmenn
varðandi notkun kortsins, þá er það almennt þannig að þeir námsmenn sem dvelja innan EES geta haldið lögheimili sínu hér á Íslandi á meðan þeir stunda nám, annað gildir um Norðurlöndin.  Þar þarf fólk almennt að flytja lögheimili sitt (sé dvölin lengri en 6 mán.) og gildir kortið ekki ef einstaklingur flytur lögheimili sitt frá Íslandi.  Það þarf ekki að framvísa kortinu á Norðurlöndunum (sé dvölin skemur en 6 mán) til þess að eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu/læknishjálp, eingöngu þarf að framvísa skilríkjum sem staðfesta búsetu á einu af norðurlöndunum (samt er ekki verra að hafa kortið).

3. Samningurinn vegna Erasmus styrksins (sem þið fáið/fenguð í tölupósti)
Til að geta sýnt fram á Erasmus „status".

4. Passamyndir  (gott að hafa með)

5. Ástundunarvottorð:  
Til að fá lán frá LÍN þarf að útbúa ástundunarvottorð sem sent er í nemendaskrá og þaðan til LÍN.   Ástundunarvottorð er gert eftir að alþjóðaskrifstofa eða alþjóðafulltrúi viðkomandi deildar hefur fengið staðfestingu frá nemenda um námið í gestaskólanum.  Staðfestingin þarf að sýna hvaða námskeið er verið að taka .  Ástundunarvottorðið fer í nemendaskrá sem sendir upplýsingar til LÍN.

6. Mat á námi frá gestaskóla, einkunnir og vottorð v/LÍN  
Gögn (vottað námsferilsskjal) þar að lútandi sendist til viðkomandi deilda eða til Alþjóðaskrifstofu heimaskóla sem mun koma öllum upplýsingum áfram til réttra aðila. Ef  þið þurfið að breyta námsáætlun ykkar verðið þið að hafa samband við skorarformann eða alþjóðafulltrúa í viðkomandi deild/skóla.

Áður en dvöl ykkar við gestaskólann lýkur viljum við benda ykkur á að ganga vel frá  öllu varðandi próf , einkunnir og hafa heim með ykkur allar fáanlegar upplýsingar um þau námskeið sem þið hafið tekið þátt í.  T.d. tímafjölda  á viku, bókalista, nafn kennara, mat á námi,  ECTS einingar  og muna að  halda til haga ritgerðum og verkefnum sem þið hafið lokið á tímabilinu.

Það reynist oft erfitt  að fá nauðsynlegar upplýsingar um námskeiðin  sem þið hafið tekið við gestaskólann eftir að heim er komið þar af leiðandi gengur seint að fá þau námskeið  metin hér heima.

Af gefnu tilefni viljum við minna ykkur á að lesa vandlega alla þá samninga og/eða tilboð varðandi húsnæðismál hjá gistiskóla.  Alltof oft hafa íslenskir stúdentar þegið herbergi sem gestakólinn hefur útvegað en neitað síðan að taka tilboðinu ef eitthvað betra býðst á síðustu stundu.  

Nauðsynleg gögn fyrir Erasmus-stúdenta á leið út:
1.        Vegabréf    (gott að hafa afrit af því líka)
2.        Evrópska sjúkratryggingakortið
3.        Staðfestingu  frá gestaskóla
4.        Undirritaðan samning vegna Erasmus styrksins
5.        Staðfestingu frá LÍN eða banka / framfærsluvottorð (gott að hafa en ekki alltaf nauðsynlegt)  
6.        Passamyndir (fyrir stúdentaskírteini og fleira)

Aðrar gagnlegar upplýsingar áður en farið er út

1.  Byrjaðu snemma að undirbúa þig, helst ári fyrir brottför.
2.  Byrjaðu á því að skoða upplýsingar á heimasíðu alþjóðskrifstofu HA og aðrar upplýsingar aðgengilegar á skrifstofunni sjálfri.
3.  Kannaðu möguleika þína í löndum sem þú þekkir lítið. IRIS gagnagrunninn sem komið var á fót til að safna saman
     lokaskýrslu allra ERASMUS skiptistúdenta. Þar má meðal annars finna upplýsingar um námskeið, kennsluhætti, húsnæði og
     allt það sem ber að hafa í huga þegar haldið er í skiptám.  Áreiðanlegustu upplýsingarnar er að finna hjá þeim stúdentum
     sem nýlega hafa verið í skiptinámi.
4.  Taktu þátt í alþjóðadegi HA
5.  Kannaðu hvort þú uppfyllir nauðsynleg skilyrði til þess að eiga kost á því að fara utan í skiptinám.
6.  Lestu námsskránna þína og ef þú ert ekki klár á hvaða námskeið þú ættir að velja til þess að fá þau metin sem hluta af þínu
     námi geturðu pantað viðtal við yfirmann þinnar deildar.
7.  Ef þér tekst ekki að finna nægjanlegar upplýsingar um þann eða þá háskóla sem þér finnast mest spennandi geturðu prófað
     að leita af upplýsingum á netinu.
8.  Kannaðu tímanlega hvort þú hafir útvegað öll gögn. Ef þú ert ekki viss, hafðu þá samband við alþjóðaskrifstofu HA.
9.  Um leið og þú hefur ákveðið hvert þú vilt fara ættirðu að kanna strax hvaða styrkir eru í boði og sækja um þá. Ekki bíða eftir
     að umsóknin þín fái samþykki. Skilaðu inn ítarlegri og vandaðri umsókn um styrki.
10. Reyndu að komast í samband við stúdenta HA sem áður hafa farið utan í viðkomandi háskóla og kannaðu hvort einhverjir
     erlendir skiptistúdentar við HA komi frá þeim háskóla.
11. Gerðu fjárhagsáætlun. Passaðu upp á að vegabréfið þitt sé í gildi að minnsta kosti út áætlaðan dvalartíma erlendis. Pantaðu
     þér flugfar til að fá það á sem hagstæðustu verði. Kannaðu reglur um dvalarleyfi.
12. Alþjóðaskrifstofa HA mun vera í sambandi við þig í gegnum HA netfangið þitt.
13. Ef þú hefur áhuga á að leigja húsnæði þitt eða herbergi á meðan þú dvelur erlendis í skiptinámi þá vantar á hverri önn,
     fjölda erlendra skiptistúdenta sem koma til náms í HA, þak yfir höfuðið frá miðjum ágúst til desemberloka, eða frá byrjun
     janúar til júníloka.
14. Þegar þú snýrð aftur heim mundu þá að fylla út lokaskýrslu og skila henni inn til alþjóðaskrifstofu HA.

Bestu kveðjur
Alþjóðafulltrúi HA

Blar Gulur Hvitur
A A A
Stefán B. Sigurđsson

„Háskólinn á Akureyri veitir nemendum sínum einstakt tćkifćri til ađ taka virkan ţátt í nýsköpun ţekkingar á fjölmörgum sviđum. “

Stefán B. Sigurđsson rektor
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf