Umsóknarfrestir fyrir
skólaárið 2011-2012.
- Umsóknarfrestur er 15. maí.
Erasmus umsókn fyrir skólaárið 2011-2012(tímabil hefst í júní 2011)
Erasmus lokaskýrsla fyrir skólaárið 2011-2012
Gamlar lokaskýrslur og reynslusögur kennara af Erasmus skiptum
Samstarfsskólar HA innan Nordplus og Erasmus, auk annars samstarfs eftir deildum:
- Hjúkrunarfræði
- Iðjuþjálfun
- Félagsvísindadeild
- Lagadeild
- Nútímafræði
- Kennaradeild
- Auðlindafræði
- Viðskiptafræði
Einng er er hægt að sækja um á heimasíðu Landsskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins og lesa sér frekar til um kennara- og starfsmannaskiptin.
Háskólinn á Akureyri hefur gert samninga við nokkra háskóla í Evrópu er lúta að kennaraskiptum innan
Erasmus-áætlunarinnar. Á síðustu árum hefur verið nokkuð um það að kennarar HA hafa farið í nokkurra daga heimsókn
í einn af samstarfsskólunum, haldið þar fyrirlestra og kennt í tímum. Einnig hafa erlendir kennarar komið hingað og kennt hér í nokkra
daga. Slík kennaraskipti eru afar vel til þess fallin að skapa góð tengsl á milli kennara og tækifæri er á að kynna sér
ólíkar starfsaðferðir á milli landa.
Vakin skal athygli á því að samningur telst gildur strax að lokinni undirritun og eru kennaraskipti oft fyrsta skrefið að auknu samstarfi á milli
skóla.
Þegar sækja skal um styrk til kennaraskipta skal hafa samband við alþjóðasvið með tölvupósti á netfangið international@unak.is. Eftir það er komið á tengilið við gestaskóla sem sér um að skipuleggja heimsókn í samráði við umsækjanda. Rafræna umsókn um styrkinn er að finna hér að ofan og skal skila útprenntuðu og undirrituðu eintaki til alþjóðafulltrúa HA.
Kennaraskipti og starfsþjálfun
- Ferðakostnaður allt að 1000 €
- Dagpeningar á bilinu 120-57 Evrur á dag (fer eftir lengd dvalar og lækka eftir því sem dvöl er lengri).
- Heildarstyrkur getur ekki orðið hærri en 2000 €
- Ekki er nein lágmarksdvöl vegna kennaraskipta en aðkoma að kennslu verður að vera í það minnsta 5 tímar. Hámarksdvöl er 6 vikur.
Athugið að auðvelt er að koma á nýjum samningum ef vilji reynist fyrir hendi hjá báðum skólum. Samningur tekur gildi við undirritun þannig að eftir það er strax hægt að koma á kennaraskiptum á milli skólanna.


