Háskólinn á Akureyri

Nemendaskipti HA hafa farið vaxandi í gegnum árin og er oft gestagangur á skrifstofu alþjóðamála vegna

Nemendaskipti

NemendaskiptiNemendaskipti HA hafa farið vaxandi í gegnum árin og er oft gestagangur á skrifstofu alþjóðamála vegna nemenda sem eru áhugasamir um dvöl í erlendu landi. Þess má geta að enskt heiti háskóla, "university", hefur í sér alþjóðlega skírskotun. Það er hlutverk háskóla að vinna út á við í alþjóðasamfélagi til jafns við innri vinnu í nærsamfélagi.

 

Kostirnir við nemendaskipti eru umtalsverðir fyrir nemendur. Þar má m.a. nefna:

  • aukin tungumálakunnátta
  • reynsla af nýju skólakerfi
  • þekking á siðum og venjum annarra þjóða
  • reynsla sem nýtist í atvinnulífi síðar meir

Helstu skilyrði sem nemandi þarf að uppfylla til að taka þátt í nemendaskiptum á vegum HA er:

  • að hafa lokið 60 ECTS einingum í viðkomandi námi
  • að fara út í fullu samstarfi við sína deild

    Þar sem nemendur sækja um beint til sinnar deildar um að fá að taka eina önn eða eitt skólaár við erlendan háskóla og áfangar eru valdir í fullu samráði við deildina hér við HA, þá er nemendum tryggt að nám þeirra við erlenda skólann er metið til eininga við HA er heim er komið. 

Í stuttu máli má segja að ferill umsóknar um skiptinám sé eftirfarandi:

  • 1. nemandi hefur samband við skrifstofu alþjóðamála og viðrar áhuga sinn á skiptinámi
  • 2. nemandi velur sér skóla til að sækja um og fyllir út "Learning agreement" (eyðublað fyrir kúrsaval) þar sem koma fram kúrsar sem valdir eru í samtarfsskólanum.
  • 3. nemandi ber kúrsaval sitt sem og tímabil skiptináms undir alþjóðafulltrúa deildarformann/brautarstjóra/forseta fræðasviðs eftir því sem við á. Alþjóðafulltrúi deildar sendir skjalið svo til matsnefndar viðkomandi deildar/brautar.
  • 4. nemandi sækir um í skólanum með aðstoð skrifstofu alþjóðamála
  • 5. nemandi sækir um styrki ef einhverjir eru

 Glærukynning á möguleikum til skiptináms!

Til að fræðast um samstarfsskóla HA og möguleika á ýmsum styrkjum, skoðið þá undirsíður í veftrénu hér til hliðar.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Þverfagleiki náms við HA gerir manni kleift að sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir því að hafa valið HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf