Háskólinn á Akureyri

Umsóknarfrestur fyrir Nordplus skiptinámog styrk skólaárið 2011-2012 er 1. mars en 1. nóvember fyrir

Nordplus

Umsóknarfrestur fyrir Nordplus skiptinámog styrk skólaárið 2011-2012 er 1. mars en 1. nóvember fyrir vormisseri ef einhverjir styrkir eru. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fara á biðlista. 

NORDPLUS er norræn hliðstæða ERASMUS-áætlunarinnar. Hún miðar að því að Norðurlöndin og nú einnig Eystrasaltslöndin verði einn menntunarmarkaður. Í því felst að stúdentum er gert kleift að stunda hluta af námi sínu við annan háskóla en sinn eigin, í einhverju hinna samstarfslandanna, og fá námið metið til eininga heima fyrir. Þar taka þátt fjölmargir skólar á háskólastigi á Norðurlöndunum, ýmist í stóru og opnu neti sem kallast Nordlys eða innan lítilla fagneta innan ákveðis fræðasviðs. Sérhæfð samstarfsnet HA innan Nordplus eru:

  • Nordkvist (hjúkrunarfræðinet)
  • Nordlænk (hjúkrunarfræðinet)
  • SSK Umeaa (hjúkrunarfræðinet)
  • EkoTekNord (viðskiptafræðinet)
  • Nordnatur (auðlindafræðinet)
  • NNTE (kennarafræðinet)
  • Nordlær (kennarafræðinet)
  • Iðjuþjálfanet
  • Heimspekinet (nútímafræði)
  • Sustainable Water and Energy Management Network (auðlindafræði)

Fyrir Íslendinga felur þetta í sér möguleika á námsdvöl í Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Noregi, Svíþjóð, Eistlandi, Lettlandi og Litháen í eitt til tvö misseri. NORDPLUS-stúdentar gera námsáætlun áður en haldið er út og fá námið metið sem eðlilegan hluta af námi sínu hér. Til þess að mæta þeim kostnaði sem felst í því að skipta um skóla veitir NORDPLUS sérstaka ferða- og dvalarstyrki.

Hvað er NORDPLUS-styrkur?
Í því skyni að auðvelda stúdentaskipti á vegum Nordplus eru veittir styrkir til að mæta ferða- og viðbótarkostnaði sem nemendur verða fyrir vegna námsdvalarinnar erlendis. Athygli er vakin á því að Nordplus er ekki einungis ætlað að greiða götu þeirra sem hljóta styrki, stúdentar geta einnig notið góðs af skipulögðu samstarfi norænna háskóla og farið utan sem Nordplus-skiptinemar án styrks.

Árið 2011 - 2012 hljóða Nordplus styrkir upp á:
 
Flugfargjald, hámark 660 Evrur
Staðaruppbót, hámark 200 Evrur á mánuði
Styrkirnir skerða ekki námslán frá LÍN.

Í veftrénu hér til vinstri má sjá við hvaða samstarfsskóla hver deild við Háskólinn á Akureyri er í og hvaða samstarfsneti það tilheyrir.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfræðin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alþjóðlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf