Háskólinn á Akureyri á í samstarfi við skóla á nokkra mismunandi vegu. Hér til vinstri er hægt að velja samstarfsskóla eftir deildum.
-
Í fyrsta lagi er um að ræða Nordplus-áætlun innan norræns samstarfs. Þar taka þátt fjölmargir skólar á háskólastigi á Norðurlöndunum, ýmist í stóru og opnu neti sem kallast Nordlys eða innan lítilla fagneta innan ákveðis fræðasviðs. Hægt er að sækja um skipti innan þess samstarfs.
-
Í öðru lagi eru gerðir tvíhliða samningar við skóla innan Erasmus-áætlunarinnar. Þar er möguleiki á stúdenta, kennara- og starfsmannaskiptum og hægt að sækja um styrki vegna slíkra nemendaskipta.
-
Í þriðja lagi er um að ræða North2North samstarf háskóla á Norðurslóðum. Hægt er að sækja um styrki fyrir nemendaskiptum innan þessa samstarfs.
-
Að endingu er það síðan tvíhliða samningar við skóla utan Evrópu. Ekki er um neina styrki að ræða í því tilfelli en skólagjöld við gestaskóla eru felld niður. Reyndar er það svo innan allra þessara möguleika að nemendur eru skráðir sem nemendur við HA og borga innritunargjald þar, en engin gjöld við gestaskólann.


