Í Handbók um styrki sem unnin er af starfsmönnum Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins er að finna ýmsa íslenska og erlenda styrktarsjóði til náms og rannsókna erlendis og hér á landi. Athugið að undir "Ísland" eru fjölmargir íslenskir styrktarsjóðir, sem margir nýtast til náms erlendis.
Þær upplýsingar um styrki sem eru í Handbókinni, eru fengnar hjá þeim aðilum sem standa á bak við þá hvort sem er af
vefsíðum, eða berast til okkar á annan hátt. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins ber ekki ábyrgð á áreiðanleika
þeirra upplýsinga, né tekur við umsóknum og úthlutar styrkjum sem ekki eru á vegum skrifstofunnar.
The Grants Register 2007 -The Complete Guide to Postgraduate Funding Worldwide er til á Upplýsingastofu. Þar er að finna nálægt 4000 styrki til
framhaldsnáms frá 58 löndum. Mjög auðvelt er að leita í bókinni t.d. eftir fögum.


