Tvíhliða samningar
Skólarnir hér fyrir neðan hafa gert svokallaða tvíhliða samninga við Háskólann á Akureyri. Það gerir það að verkum að nemendur sem hafa lokið 60 ECTS einingum við HA, geta sótt um að taka eina til tvær annir við einn af neðangreindum samstarfsskólum. Ekki er um styrki að ræða innan þess háttar samstarfs en nemendur greiða engin skólagjöld við gestaskólann, aðeins innritunargjald við HA. Sumir skólar gera kröfur um ensku kunnáttu og þarf þá að framvísa niðurstöðum úr TOEFL- prófi. Vinsamlegast leitið frekari upplýsinga til Alþjóðafulltrúa um eðli samstarfssamningsins. Nemendur athugið, LÍN hefur veitt ferðalán til þeirra sem ekki fá styrk til ferðakostnaðar, frekari upplýsingar gefur LÍN (www.lin.is).
| Tvíhliða samstarfssamningar | Tvíhliða samstarfssamningar | |
|
Kína » China University of Political Science and Law (CUPL) Ástralía Japan Erítrea |
Bandaríkin » California State University Monterery Bay Kanada » University of Guelph Mexíkó |


