Háskólinn á Akureyri

Hlutverk Háskólans á Akureyri er að veita nemendum tækifæri til menntunar í metnaðarfullu og alþjóðlegu náms- og rannsóknarumhverfi. Háskólinn skapar fræðimönnum sínum umhverfi og aðstöðu til rannsókna og nýsköpunar sem stuðlar að vexti og framþróun íslensks samfélags og veitir inn í það nýjum straumum. Háskólinn leggur áherslu á gagnvirk tengsl við atvinnulífið.

Fréttir

Afgreiðslutími bókasafnsins sumarið 2012

Frá og með 14. maí verður bókasafnið opið 8:00 – 16:00 alla virka daga. Vegna sumarleyfa verður safnið lokað frá 16. júlí – 3. ágúst. Við opnum aftur þriðjudaginn 7. ágúst kl. 8:00.


bX Hot Articles - ókeypis þjónusta fyrir farsíma

Vakin er athygli á því að Ex Libris hefur kynnt til sögunnar nýja ókeypis þjónustu þar sem hægt er að fylgjast með hvaða tímaritsgreinar eru vinsælastar á hinum ýmsu fræðasviðum. Þjónustan heitir bX Hot Articles. Hægt er að sækja farsíma app fyrir bX Hot Articles úr bæði Android og Apple verslunum á http://www.exlibrisgroup.com/category/HotArticlesMobileApps.

Einnig er hægt að velja íslensk bókasöfn þar á meðal Bókasafn HA sem nota SFX tenglakerfið úr stofnanalista bX Hot Articles. Við ráðleggjum okkar fólki að velja Háskólinn á Akureyri ef þeir vilja tengja við tímaritaforða bókasafnsins.

Lesa meira

Les- og vinnuaðstaða nemenda í prófatíð apríl/maí 2012

Eftirfarandi kennslustofur eru aðgengilegar nemendum í prófatíð og merktar sem lesstofur á Vef-Stefaníu: K201, K202, L201, L202, L203 á Sólborg og R311 og R312 á Borgum.  Nemendum er líka frjálst að nota tölvustofuna K203 til vinnu sinnar þegar ekki er verið að kenna þar.

Lesa meira

Baby´s in Black - myndasögusýning á bókasafni

Opnuð hefur verið sýning á Bókasafni Háskólans á Akureyri á teikningum úr myndasögunni Baby‘s in Black eftir þýska myndasöguhöfundinn Arne Bellstorf.

Lesa meira

Blar Gulur Hvitur
A A A
Fjóla Þorsteinsdóttir

„Persónulegt námsumhverfi er það sem heillar mig mest við Háskólann á Akureyri.“

Fjóla Þorsteinsdóttir viðskiptafræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf