Háskólinn á Akureyri

Baby’s in Black - fjarfundur 6. október kl. 15:15 í stofu M202 Bókasafns Háskólans á Akureyri kynnir fjarfund með

Baby’s in Black - fjarfundur 6. október kl. 15:15 í stofu M202

Bókasafns Háskólans á Akureyri kynnir fjarfund með þýska myndasöguhöfundinum Arne Bellstorf og Úlfhildi Dagsdóttur í samvinnu við Borgarbókasafn Reykjavíkur og Goethe-Institut. Arne Bellstorf þýskur myndasöguhöfundur mun fjalla um sögu sína Baby’s in black og myndasögugerð í spjalli við Úlfhildi Dagsdóttur, fimmtudaginn 6. október, kl. 15:15 í húsnæði Námsflokka Hafnarfjarðar við Skólabraut. Hægt verður að fylgjast með fundinum í stofu M202 í húsnæði Háskólans á Akureyri. Samtalið verður á ensku. Allir velkomnir.

Viðtalið við höfundinn er í tengslum við sýningu sem opnar miðvikudaginn 5. október kl. 17 í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi á teikningum úr myndasögunni Baby’s in Black eftir Arne. Baby’s in Black er ævisöguleg myndasaga sem gerist á fyrstu árum Bítlanna í Hamburg og fjallar um kynni bítilsins Stuart Sutcliffe og listakonunnar Astrid Kirchherr.


Blar Gulur Hvitur
A A A
Hákon Örn Hafţórsson

„HA veitir nemendum góđa ađstöđu til náms og mér líđur vel í bćđi áhugaverđu og krefjandi námi sem kennarafrćđin er.“

Hákon Örn Hafţórsson kennaranemi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf