Háskólinn á Akureyri

Global Open Access Portal (GOAP) á vegum UNESCO 1. nóvember sl. var opnuð á vegum UNESCO vefgáttin Global Open Access

Global Open Access Portal (GOAP) á vegum UNESCO

1. nóvember sl. var opnuð á vegum UNESCO vefgáttin Global Open Access Portal (GOAP). Markmiðið með GOAP er að miðla alþjóðlegum upplýsingum um opinn aðgang (Open Access). Opinn aðgangur felur í sér að heildartexti vísindagreina fræðafólks er aðgengilegur án endurgjalds á Netinu. Á vefgáttinni má finna upplýsingar um stöðu mála hér á Íslandi líkt og í öðrum löndum sem hafa beitt sér fyrir málefninu.

Á Íslandi eru til tvö varðveislusöfn (open repositories) sem starfa eftir hugmyndafræði opins aðgangs, Skemman og Hirslan. Skemman hýsir og veitir aðgang að lokaritgerðum nemenda og rannsóknarritum kennara og fræðimanna Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst, Háskólans í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Hirslan sem er á vegum bókasafns Landspítalans veitir aðgang að vísindagreinum starfsmanna Landspítalans.


Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf