Með áskrift Bókasafns Háskólans á Akureyri að Skólavefnum 2011
fylgir aðgangur að hljóðbókasíðunni hlusta.is, rafbókasíðunni lestu.is og framhaldsskoli.is sem
er kennslu- og þjálfunarvefur fyrir nemendur í framhaldsskólum. Þar er m.a. að finna Stærðfræðikennarann, myndbandskennslu í stærðfræði
á framhalds- og háskólastigi. Athugið að aðgangurinn að síðunum er bundinn við staðarnet háskólans eða VPN. Smellið á tengilinn IP tölu gátt efst í hægra horni forsíðunnar áður en
notkun hefst.
Hlusta.is er hljóðbókasíða þar sem hægt er að sækja
ógrynni upplesins íslensks efnis til þess að hlusta á í tölvunni, skrifa á geisladiska eða setja á iPod. Þar er einnig að
finna Hlustun og skilning, nýtt námsefni til þjálfunar á hlustunarskilningi.
Lestu.is er fyrsta rafbókasíðan á Íslandi. Síðan er þó ekki aðeins bókasafn fyrir rafbækur heldur einnig bókmenntasíða sem nýtist kennurum og nemendum á grunnskólastigi. Hér verður boðið upp á vandaðar bækur af ýmsu tagi til að lesa beint af tölvunni eða í þeim nýju tækjum sem útbúin hafa verið sérstaklega til þess brúks og eru að ryðja sér til rúms.


