Á Bókasafni HA stendur yfir sýning á málverkum í eigu háskólans eftir listamennina Helga Vilberg, Guðmund Ármann og Kristinn G.
Jóhannsson. Þetta eru málverk sem héngu í húsnæði HA í Þingvallastræti meðan starfsemi fór fram þar.
Við hvetjum nemendur og starfsfólk til að koma og skoða sýninguna sem stendur fram yfir páska. Bókasafnið er opið frá 8 – 18
mánudaga til fimmtudaga og frá 8 – 16 á föstudögum.


