Háskólinn á Akureyri

Námsefnissýning og fræðslufundir 6. sept. 2010 Þann 6. september nk. verður Námsgagnastofnun í samvinnu við

Námsefnissýning og fræðslufundir 6. sept. 2010

Þann 6. september nk. verður Námsgagnastofnun í samvinnu við kennslugagnadeild Bókasafns Háskólans á Akureyri og BKNE (Bandalag kennara á Norðurlandi eystra) með námsefnissýningu og fræðslufundi í Háskólanum á Akureyri. Allir velkomnir!

Námsefnissýning verður haldin í hátíðarsal (N101) í nýbyggingu háskólans á Sólborg við Norðurslóð þar sem til sýnis verður mikið af útgefnu efni stofnunarinnar. Sýningin hefst kl. 13:00 og stendur til 16:30.

Fulltrúar frá Námsgagnastofnun verða á staðnum til að svara fyrirspurnum og haldnar verða stuttar vefkynningar þar sem farið verður yfir vef stofnunarinnar, ww.nams.is og margt af því fjölbreytta námsefni sem þar er að finna. Vefkynningarnar verða kl. 13:30, 14:30 og 15:30 í tölvustofu K203. Umsjón hafa Ellen Klara Eyjólfsdóttir kynningarstjóri/ritstjóri og Tryggvi Jakobsson útgáfustjóri. 

Á sýningunni verður kynnt námefnið Íslenska á allra vörum - fjölnota efni eftir Bryndísi Indu Stefánsdóttur og Kristínu Björk Gunnarsdóttur grunnskólakennarar.

Einnig verður boðið upp á sex fræðslufundi sem haldnir verða í kennslustofum í nýbyggingu háskólans við Norðurslóð - allir endurgjaldslaust. Dagskrá fræðslufundanna má nálgast hér.



Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt við University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkaði sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viðskiptafræði
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf