Boðið verður upp á upprifjunarnámskeið fyrir lokaverkefnisnema þar sem lögð verður áhersla á að kynna helstu gagna- og tímaritasöfn sem nýtast nemendum við heimildaöflun vegna rannsóknarvinnu er tengist lokaverkefninu. Einnig verður heimildaskráningakerfið RefWorks kynnt fyrir þátttakendum.
Tímasetningar:
þriðjud. 18. jan. kl. 10:00 – 11:40 (nútímafræði og þjóðfélagsfræði),
miðvikud. 19. jan. kl. 10:00 – 11:40 (fjölm.fr. og samfél.- og hagþróunarfræði),
fimmtud. 20. jan. kl. 10:00 – 11:40 (sálfræði),
fimmtud. 20. jan. kl. 14:25 – 16:05 (fjarn., grunn- og leikskólakenarafræði), M201,
mánud. 24. jan. kl. 10:00 – 11:40 (grunnskólakennarafræði, staðnemar),
þriðjud. 25. jan. kl. 10:00 – 11:40 (leikskólakennarafræði, staðnemar),
mánud. 24. jan. kl. 12:35 - 14:15 (auðlindafræði), stofa M202,
mánud. 24. jan. kl. 14:25 - 16:05 (viðskiptafræði), stofa M202,
föstud. 28. jan. kl. 10:00 – 11:40 (lögfræði).
Námskeiðin verða haldin í stofu K203 nema fjarfundurinn 20. jan. sem verður í M201 og námskeiðið fyrir
auðlinda- og viðskiptafræði í M202.
Vinsamlega skráið ykkur með því að senda tölvupóst á astrid@unak.is og takið fram
hvaða námskeið þið viljið sitja/á hvaða braut þið eruð.


