Háskólinn á Akureyri

Rafrćn skil lokaverkefna í Skemmu - leiđbeiningar um skilaferli og skráningu Smellt er á Skil í Skemmuna /Skemman mín

Rafrćn skil lokaverkefna í Skemmu - leiđbeiningar um skilaferli og skráningu

Smellt er á Skil í Skemmuna /Skemman mín og Háskólinn á Akureyri valinn. Nemendur nota sama notendanafn og lykilorð og inn á vefpóstinn. Undir valmyndinni Hefja ný skil er viðeigandi safn valið og tegund Lokaverkefni. Leiðbeiningar eru að finna á hverri síðu í skilaferlinu. Verkefnið skal vistað á pdf formi. Svið sem skilyrt er að fylla út eru merkt sérstaklega (höfundur, titill, útdráttur), önnur svið eru valkvæð (t.d. tengd vefslóð, lýsing og styrktaraðili). Til að senda lokaverkefni inn til staðfestingar (síðasta skrefið í skilaferlinu) verður að samþykkja skilmálana.

Að skilum loknum birtist texti í Skemmunni minni / Skilin mín sem staðfestir að verkefninu hafi verið skilað og sent til yfirferðar og tölvupóstur þess efnis er sendur til viðkomandi. Að yfirferð lokinni er sendur út annar tölvupóstur með niðurstöðu yfirferðarinnar, þ.e. hvort verkinu hefur verið hafnað eða það samþykkt í Skemmuna. Ef verkinu hefur verið hafnað er það sent tilbaka og viðkomandi fær tækifæri til að lagfæra það sem er ábótavant og senda lokaverkefnið inn aftur.

Skráning lokaverkefna í Skemmu
Eins og áður segir er verkefnið vistað á pdf formi og skráð í Skemmu. Þau eru opin til aflestrar en athugið að óheimilt er að prenta eða afrita þau. Nemendur bera ábyrgð á að setja læsingar á verkefnið til þess að koma í veg fyrir útprentun eða afritun.

Þeir nemendur sem hafa hug á að loka aðgengi að heildartexta skulu skipta verkefninu upp í eftirfarandi skjöl og gera aðgengileg: 1) Efnisyfirlit, 2) Heimildaskrá, 3) Fylgiskjöl (ef einhver eru). Heildartexti lokaverkefnisins (allt verkefnið í heild) skal þó alltaf vera skráður í Skemmu og vera að fullu sambærilegur við prentað eintak. 

Prentuð eintök
Nemendur skila einnig einu innbundnu prentuðu geymslueintaki og skal því skilað til viðkomandi deildar ásamt öðrum skilaeintökum nemenda.

Skiladagur á rafrænu og prentuðu eintaki skal eiga sér stað í síðasta lagi á settum skiladegi deildar og eru tilskilin eintök forsenda brautskráningar.

Ef vandamál koma upp við vistun í Skemmu má senda fyrirspurn á unak@skemman.is eða hafa samband við starfsfólk bókasafns s. 460-8050, Astrid s. 460-8051 eða gagnasmiðju, Óskar s. 460-8070.



Blar Gulur Hvitur
A A A
Ómar Karlsson

„Háskólinn á Akureyri er ađgengilegur og vingjarnlegur skóli sem býđur upp á gott nám“

Ómar Karlsson nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf