Þegar notendur skrá sig inn á RefWorks fara þeir sjálfkrafa inn á gamla leitarumhverfið ”RefWorks Classic” en geta valið að tengjast því nýja ”RefWorks 2.0”, með því að smella á tengil efst í hægra horni í aðalvalmynd/tækjastiku.
Seinna á árinu mun RefWorks 2.0 taka við sem aðalleitarumhverfið, þangað til hafa notendur möguleika á nota bæði leitarumhverfin að vild. Til að skipta yfir í „gamla“ umhverfið þá er einfaldlega smellt á „RefWork Classic“ tengilinn í hægra horni tækjastiku. Það mun ekki hafa áhrif á gögnin eða innihald gagnagrunnsins að fara fram og tilbaka á milli leitarumhverfa.
RefWorks 2.0 er notendavænt og tekur mið af nýjustu þróun í veftækni og hönnun. Write-N-Cite og RefGrab-It nota ennþá „gamla“ umhverfið en vinna með 2.0 og verða uppfærð seinna á árinu.
Notendur RefWorks eru eindregið hvattir til að kynna sér RefWorks 2.0.
Eftirfarandi tenglar vísa á gagnlegar leiðbeiningar og stuðningsefni.
Einfaldar leiðbeiningar (Quick Start Guide) -http://staff.unak.is/not/astrid/RefWorks2.0_QSG_English.pdf
Stutt skjáupptaka um RefWorks 2.0 - http://www.refworks-cos.com/refworks/rwpreview/RefWorks_New_UI_demo.htm
Gagnvirkar leiðbeiningar/skjáupptökur (RefWorks 2.0 Fundamentals Tutorials) - http://www.refworks-cos.com/refworks/tutorials/basic.html
Æfingar fyrir byrjendur (Fundamentals Workbook) - http://staff.unak.is/not/astrid%20/RefWorks2.0_FundamentalsWorkbook.pdf
Æfingar fyrir lengra komna (Advanced Workbook) - http://staff.unak.is/not/astrid/RefWorks2.0_AdvancedFeaturesWorkbook.pdf
Vefkennsla (Training Webinars) - http://www.refworks-cos.com/training/.
Smellið á „RefWorks“ til að sjá lista yfir tímasetningar, skráningu og eldri upptökur.


