Vakin er athygli á Vistey http://www.vistey.is/ nýrri upplýsingagátt með
upplýsingum um vistkerfi hafsins í Eyjafirði. Vefgáttin er samvinnuverkefni Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar við Háskólann
á Akureyri, Arctic Portal og Erlendar Bogasonar kafara. Vistey er ætluð fyrir hvern sem er, almenning, vísindamenn og ferðamenn sem vilja fræðast um undraheima
hafsins í Eyjafirði. Síðan er bæði aðgengileg á íslensku og ensku. Þá geta skólar tileinkað sér síðuna
fyrir nemendur til að fræðast um Eyjafjörð og lífríki hans.


