Háskólinn á Akureyri

Lögð er áhersla á að sinna öllum beiðnum um millisafnalán innan sólarhrings frá því

Biđtími rita

Lögð er áhersla á að sinna öllum beiðnum um millisafnalán innan sólarhrings frá því að þær berast bókasafninu. Í langflestum tilvikum eru greinar komnar frá innlendum söfnum innan tveggja til fimm sólarhringa en bíða þarf allt frá fimm til tíu dögum, upp í nokkrar vikur eftir bókum erlendis frá.

Séu upplýsingar ófullnægjandi má búast við töf á afgreiðslu. Beiðnir um millisafnalán eru bindandi og má því búast við reikningum fyrir ósótt efni.

Brýnt er að notendur hafi góðan fyrirvara við öflun heimilda.


Lánstími rita
Algengasti lánstími frá innlendum og erlendum söfnum er þrjár til fjórar vikur. Bækur sem mikil eftirspurn er eftir má þó yfirleitt ekki hafa nema í tvær vikur. Afar mikilvægt er að skilafrestur bóka sem fengnar eru með þessum hætti sé virtur. Í sumum tilfellum er hægt að fá lánstíma framlengdan en það veltur á safninu sem á bókina og beiðni um slíkt þarf að hafa borist starfsfólki millisafnalána áður en lánsfrestur rennur út.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf