Sú nýbreytni hefur verið tekin upp hjá Námsgagnastofnun að gefa skólum kost á að hlaða niður myndum af vef stofnunarinnar til sýningar. Þetta er skólum að kostnaðarlausu. Hefur aðgangurinn verið virkjaður fyrir Háskólann á Akureyri og ætti því hver og einn að geta hlaðið niður fræðslumyndum á hvaða tölvu sem er innan skólans.
Farið inn á vefinn http://www.nams.is/
- Farið í hnappinn Námsefni
- Veljið Allar námsgreinar eða einstaka námsgrein
- Hakið við Fræðslumyndir (í hægri dálki undir Stoðleit)
- Veljið Skoða nánar
- Smellið á titil myndarinnar fyrir aftan Ókeypis niðurhal
- Ef allt er í lagi þá hefst sýning myndar


