Háskólinn á Akureyri

Við Háskólann á Akureyri er gagnabanki sem gengur undir heitinu Hlaðan. Hlaðan heldur utan um og veitir aðgang

Hlaðan

HlaðanVið Háskólann á Akureyri er gagnabanki sem gengur undir heitinu Hlaðan.
Hlaðan heldur utan um og veitir aðgang á vefnum að upplýsingum og gögnum, s.s. gömlum prófum og lesefni vegna valinna námskeiða (stafræn skammtímalán). Flest próf síðustu þriggja ára eru nú komin í Hlöðuna. Nemendur hafa aðgang að lykilorðum í Hlöðunni á heimasvæði sínu í Stefaníu.

Aukin fjarkennsla á háskólastigi gerir kröfur um breytta upplýsingaþjónustu háskóla og bókasafna þeirra. Erfitt getur reynst að koma lesefni og/eða ítarefni vegna námskeiða og verkefna nemenda tímanlega til þeirra sem á þurfa að halda þar sem ekki eru til nægilega mörg eintök ritanna fyrir alla. Erlend háskólabókasöfn, einkum í Ástralíu, Bretlandi og Bandaríkjunum, hafa farið þá leið sem hér er lögð til og komið á fót stafrænum kennslugagnasöfnum þar sem allir nemendur og kennarar hafa með lykilorðum aðgang að margvíslegu efni vegna námskeiða á rafrænu formi. Námsefnið sem í flestum tilvikum var á prentuðu formi hefur þá meðal annars verið gert aðgengilegt með skönnun. Forsendur þess að slíkt sé mögulegt, eru að afnot efnisins séu heimil skv. lögum um höfundarétt og í sumum tilvikum að því tilskildu að greitt hafi verið fyrir afnotin.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Ástríður Ólafsdóttir

„Í mínum huga var líftækninámið við HA heillandi vegna sérstöðu sinnar og tengingar við viðskiptafræðilega hlið fagsins.“

Ástríður Ólafsdóttir nemandi í líftækni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf