Háskólinn á Akureyri

Hlutverk upplýsingasviðs er að annast kennslu og þjálfun í upplýsingalæsi og veita notendum safnsins

Hlutverk og stefna

Hlutverk og stefnaHlutverk upplýsingasviðs er að annast kennslu og þjálfun í upplýsingalæsi og veita notendum safnsins þannig markvissan aðgang að víðtækri þekkingu hvaðanæva að.

Upplýsingasvið skapar nemendum HA persónulegt námsumhverfi og styður öflugt rannsóknarstarf innan háskólans m.a. með virkum tengslum við innlendar og erlendar stofnanir.

Upplýsingasvið leggur sitt af mörkum til að skapa virk tengsl við samfélagið og sýnir framsækni við miðlun þekkingar.

Gildi

Snerpa: Viðskiptavinir upplýsingasviðs geta gengið út frá því sem vísu að brugðist sé skjótt við beiðnum um þjónustu.

Þjónustulund: Starfsfólk upplýsingasviðs hefur ríka þjónustulund.

Fagmennska: Í starfsemi upplýsingasviðs er fagmennska ávallt í fyrirrúmi.

Framsækni: Upplýsingasvið fer lengra!

Framtíðarsýn

Bókasafn Háskólans á Akureyri verði í fremstu röð háskólabókasafna á landinu með tilliti til þjónustu, framsækni og fagmennsku.

Upplýsingasvið setur viðskiptavini sína í öndvegi við þróun þjónustu og í annarri starfsemi sinni.

Safnkostur Bókasafns Háskólans á Akureyri samsvarar fræðasviðum háskólans og styður við nám, kennslu og rannsóknir.

Leita skal leiða til að bæta húsnæðismál upplýsingasviðs með tilliti til aukinnar starfsemi og vaxandi safnkosts.

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

„Lotukennsla, símat, toppkennarar og persónulegt umhverfi er það sem lögfræðikennslan við HA býður upp á.“

Vigdís Ósk Sveinsdóttir hdl. hjá Lögmönnum Höfðabakka
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf