Innlend söfn finna þá bók sem þau óska eftir í Gegni. Þegar bók (eða annað efni) er fundið, skal farið í fulla færslu og athugað hvort útlánastaða eintaks leyfi útlán. Þetta er gert með því að smella á viðkomandi safn. Sé útlán mögulegt skal:
- velja hnappinn Vista/senda
- í reitinn Efni skal slá inn: Beiðni um millisafnalán
- í reitinn Netfang skal slá inn netfang millisafnalána bsha@unak.is
- í reitinn Athugasemd er nauðsynlegt að slá inn hvaða safn óskar eftir ritinu að láni
- taka skal fram nafn og netfang þess safns og notendanúmer á Bókasafní Háskólans á Akureyri
- sendið beiðnina með því að smella á hnappinn Í lagi
Ef þessum upplýsingum er ábótavant vitum við ekki hver það er sem óskar eftir þessu efni í millisafnaláni og getum þar af leiðandi ekki afgreitt beiðnina.
Upplýsingar um notendanúmer er hægt að fá gefið upp í síma 460 8050/460 8054 eða með því að senda tölvupóst á bsha@unak.is.


