Háskólinn á Akureyri

Les- og vinnuaðstaðaÁ bókasafninu eru lesbásar fyrir 64 safngesti, þar af eru 20 með tölvum. Inn af

Les- og vinnuaðstaða

Les- og vinnuaðstaðaLestrarsalur á bókasafni
Á bókasafninu eru lesbásar fyrir 64 safngesti, þar af eru 20 með tölvum. Inn af tölvurými er lokuð lesstofa. Fyrir og meðan á vor- og haustmisserisprófum og sjúkra- og endurtökuprófum stendur eru fartölvur ekki leyfðar í lesstofu. Fartölvur eru leyfðar til notkunar í lesstofu á tímabilinu 15. janúar til 15. apríl, 1. júní til 15. ágúst og 1. sept. til 15. nóvember. Gestir þurfa að rýma básana að loknum vinnudegi. Lokað er milli aðalsafns og lesstofu á kvöldin. Hægt er að horfa á myndbönd og margmiðlunardiska í tölvu í bókarými safnsins og þægileg aðstaða er til lesturs tímarita. Aðstaða til litaútprentunar er til staðar fyrir nemendur og starfsfólk í gagnasmiðju.

Nemendur háskólans hafa aðgang að lesstofu og tölvurými allan sólarhringinn. Til þess nota þeir snjallkort sem aðgangskort að húsum skólans en þau eru einnig nemendaskírteini, bókasafnsskírteini og ljósritunarkort. Safngestir hafa aðgang að tveimur ljósritunarvélum. 

Á Borgum geta nemendur nýtt sér kennslustofu 311 sem lesstofu. Einnig eru ákveðnar kennslustofur á Sólborg opnar að lokinni kennslu. Nánari upplýsingar um lesstofur og vinnuaðstöðu nemenda er að finna á innri vef (Stefaníu).

Í gangi við útidyr er almenningssími.

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiðsdóttir

„Viðskiptafræðinámið í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiðsdóttir viðskiptafræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf