Háskólinn á Akureyri

Beiðnir um millisafnalán skal fylla út í Gegni. Lánþegar þurfa að skrá sig inn

Beiðnir

Beiðnir um millisafnalán skal fylla út í Gegni. Lánþegar þurfa að skrá sig inn með kennitölu og lykilorði. Ef vandræði koma upp við innskráningu þá vinsamlega hafið samband við bókaverði.

Þegar innskráningu er lokið er notandi kominn á Mínar síður. Þar er hnappur merktur Panta millisafnalán. Þar er að finna eyðublöð flokkuð eftir efnistegund (bók/grein/ráðstefnurit/skýrsla).

Athugið að mjög mikilvægt er að millisafnalánabeiðnin sé fyllt út á réttan hátt og að sem ítarlegastar upplýsingar komi fram.

Tímaritsgrein
Þegar beiðni um tímaritsgrein er útfyllt þarf að slá inn fullan titil tímarits eða staðlaða skammstöfun, ár, bindi, hefti, höfund, titil greinar og blaðsíðutal. 

Bók
Ef um bók er að ræða skal slá inn höfund/ritstjóra, titil, útgáfustað, forlag og útgáfuár. Gott er að hafa ISBN númer rits ef það er þekkt. 

Ef þessum upplýsingum er áfátt gæti afgreiðslan tafist. Frekari upplýsingar veita bókaverðir. 

Leiðbeiningar fyrir innlend söfn.

Blar Gulur Hvitur
A A A
Hafdís Huld Björnsdóttir

„Skiptinám mitt við University of Manitoba í Winnipeg veitti mér ómetanlega reynslu og víkkaði sjóndeildarhringinn til muna. “

Hafdís Huld Björnsdóttir nemandi í viðskiptafræði
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf