Skráð gögn
bókasafnsins eru um 50.000 og leitarhæf í bókasafnskerfinu Gegni. Auk prentaðra gagna
bókasafnsins, bóka og tímarita, er til gott safn myndbanda, kennsluforrita, hljóðbóka og geisladiska.
Áhersla er lögð á þann safnkost sem nýtist deildum Háskólans á Akureyri og því einkum keypt rit á sviði
heilbrigðis- og kennslumála, auðlinda- og sjávarútvegsfræði, rekstrar- og viðskiptafræði, félagsfræði,
lögfræði og upplýsingatækni.
Forstöðumaður bókasafns tekur ákvarðanir um innkaup í samvinnu við kennara en allir notendur safnsins hafa tillögurétt og geta gert
tillögur um aðföng. Bókasafnið fær eintök af öllu efni frá Námsgagnastofnun. Árlega berast bókasafninu margar góðar
gjafir bæði frá einstaklingum og stofnunum.
Námsbókasafn
Kennarar Háskólans á Akureyri geta beðið um að kennslubækur og ítarefni verði einungis til afnota
á bókasafninu eða lánuð út í skamman tíma. Þessum bókum er raðað saman á námsbókasafni og þær
merktar sérstaklega.
Hlaðan er stafrænt námsbókasafn sem heldur utan um og veitir aðgang á vefnum að
upplýsingum og gögnum, svo sem gömlum prófum og lesefni vegna valinna námskeiða.
Tímarit
Um 500 prentuð tímarit og fréttabréf berast reglulega en aðgangur að rafrænum tímaritum eykst stöðugt. Góð aðstaða er á bókasafninu til að leita að og fletta í tímaritum en
þau eru að jafnaði ekki lánuð út. Heimilt er þó að ljósrita greinar úr tímaritum safnsins.


