Háskólinn á Akureyri

Rafbækur í landsaðgangi Rafbækur frá OVID. Rafbækur á sviði heilbrigðisvísinda meðal annars

Rafbækur

Rafbækur í landsaðgangi

Rafbækur frá OVID. Rafbækur á sviði heilbrigðisvísinda meðal annars frá Lippincott Williams & Wilkins og McGraw-Hill.

Rafbækur opnar frá staðarneti HA eða með VPN
(leiðbeiningar um uppsetningu á VPN er að finna á vef gagnasmiðju). 

EOLSS Online - Encyclopedia of Life Support Systems. EOLSS er samsafn sextán alfræðirita þróað undir stjórn UNESCO. Fjöldi virtra fræðimanna frá yfir hundrað löndum hefur skrifað efni í ritið. Til að fá upp leitarsíðuna smellið á Access for Institutions vinstra megin á síðunni.

Lestu.is er fyrsta rafbókasíðan á Íslandi. Síðan er þó ekki aðeins bókasafn fyrir rafbækur heldur einnig bókmenntasíða sem nýtist kennurum og nemendum á grunnskólastigi. Hér verður boðið upp á vandaðar bækur af ýmsu tagi til að lesa beint af tölvunni eða í þeim nýju tækjum sem útbúin hafa verið sérstaklega til þess og eru að ryðja sér til rúms. Fylgir áskrift HA að Skólavefnum árið 2011. 

Snara - vefbókasafn. Vefbækur, orðabækur og uppflettirit, í rafrænu formi, þar á meðal Íslensk orðabók, Ensk-íslensk orðabók með alfræðilegu ívafi, Ensk orðabók, Íslensk-ensk orðabók og Dönsk-íslensk orðabók.

Rafbækur í opnum aðgangi

Biblían: Heilög ritning. Hið íslenska biblíufélag. Einnig er hægt að fletta í Biblíunni og leita að ritningartextum á vef félagsins.

Bækur.is.  Stafrænar endurgerðir gamalla íslenskra bóka. Vefur á vegum Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns., stefnt er að því að þar muni birtast með tíð og tíma allar íslenskar bækur útgefnar fyrir 1870 í stafrænni endurgerð.

EServer. Frá Iowa State University. Rafbækur og fleira efni í opnum aðgangi.

EU Bookshop. Rit Evrópusambandsins, útgefið efni frá árinu 1952 til dagsins í dag.

ManyBooks. Rafbækur á mismunandi efnissviðum og tungumálum.

Netútgáfan. Íslenskar bókmenntir og önnur ritverk, m.a. þýðingar.

Project Gutenberg. Rafbækur þar sem höfundarréttur hefur fallið niður, mikið af norrænu efni.   

Rafbókasafnið. Á vef Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns er að finna góða samantekt yfir íslenska og erlenda heildartexta.

Saganet. Íslenskar fornbókmenntir. Myndir af handritum og bókum sem gefnar voru út fyrir árið 1901.

Questia. Fræðilegt efni á sviði hug- og félagsvísinda. Fyrir utan rafbækur þar sem höfundaréttur er fallinn niður er þar einnig að finna fjölda tímaritsgreina í rafrænu formi.

Rafbækur - leitarvélar

Google - bækur

 

Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfræðin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alþjóðlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf