Skemman er rafrænt geymslusafn (digital repository) þar sem vistuð eru stafræn eintök af lokaverkefnum nemenda við
Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Háskólann í Reykjavík, Háskóla Íslands,
Landbúnaðarháskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Einnig eru þar varðveitt rannsóknarit starfsmanna skólanna.
Geymslusafnið er samvinnuverkefni háskólanna.
Í Skemmunni eru skráð lokaverkefni HA frá árinu 2002. Þau eru eingöngu aðgengileg í stafrænu formi. Eldri verkefni eru aðgengileg á bókasafninu í prentuðu formi.
Hugbúnaðurinn DSpace er notaður fyrir Skemmuna. DSpace er opið kerfi (open source software) sem háskólar og rannsóknarstofnanir um allan heim geta nýtt sér og aðlagað að eigin þörfum.


