Starfsfólk
Bókasafns Háskólans á Akureyri leggur áherslu á góða þjónustu við nemendur og greiðan aðgang að margvíslegum
rafrænum gagnasöfnum og tímaritum á fræðasviðum háskólans. Starfsfólk safnsins veitir ráðgjöf og aðstoð við
upplýsingaleit auk þess sem áhersla er lögð á kennslu í upplýsingalæsi.
Upplýsingaþjónusta
Bókasafns- og upplýsingafræðingar eru á vakt í afgreiðslu bókasafnsins alla virka daga
frá kl. 08:00-16:00 og aðstoða við upplýsinga- og heimildaleitir. Aðstoðin er fyrst og fremst fólgin í því að leiðbeina um notkun
á safnkosti svo sem handbókum, uppflettiritum og gagna- og tímaritasöfnum.
Kennslugagnadeild veitir ráðgjöf um námsefni og efnisöflun. Nánari upplýsingar um safnið og þjónustu þess er hægt
að fá alla virka daga á milli 8:00 og 16:00, einnig er hægt að hringja í 460 8055 / 460 8050 eða senda fyrirspurnir í tölvupósti: bsha@unak.is.
Kennsla og þjálfun fyrir nemendur í upplýsingalæsi og í notkun gagna- og tímaritasafna fer
fram í ákveðnum námskeiðum sem valin eru í samráði við kennara deilda. Kennarar og annað starfsfólk háskólans geta einnig
óskað eftir kynningum eða stuttum námskeiðum í einstökum gagna- og tímaritasöfnum. Vinsamlega hafið samband við Astrid í síma
460 8051 eða sendið fyrirspurn í tölvupósti: astrid@unak.is.
Gjaldskrá
Gjaldskrá vegna sölu vöru og þjónustu.


