Á bókasafninu er lögð
áhersla á að fjarnemar njóti sömu þjónustu og nemendur í staðarnámi.
Þjónusta við fjarnema er m.a. fólgin í ljósritun og sendingu tímaritagreina, póstsendingum á efni til nemenda og
millisafnalánum. Það skal þó tekið fram að fjarnemar greiða alla jafna sama verð fyrir þjónustu bókasafnsins og aðrir
nemendur.
Fjarnemar geta tengst staðarneti skólans utan frá í gegnum sýndareinkanet eða VPN (Virtual Private Network). Með VPN aðgangi er hægt að
nálgast rafræn gögn (tímarit og gagnasöfn) í séráskrift bókasafnsins sem annars eru einungis aðgengileg á tölvum á
staðarneti háskólans. Leiðbeiningar um uppsetningu á VPN er að finna á vef gagnasmiðju.
Fjarnemar geta reiknað með sveigjanlegum útlánatíma á ítarefni á námsbókasafni.
Lögð er áhersla á að bjóða öllum nemendum háskólans kennslu og þjálfun í upplýsingalæsi bæði við upphaf náms og einnig síðar, til dæmis vegna vinnu við
lokaverkefni. Markmið fræðslunnar skal ávallt vera að stuðla að því að nemendur, nær og fjær, öðlist færni
í upplýsingalæsi og verði sem fyrst sjálfbjarga í heimilda- og upplýsingaleitum.
Í gegnum Hlöðuna geta fjarnemar nálgast ítarefni vegna námskeiða, gömul próf
og annað kennsluefni.
Fjarnemar geta einnig sent fyrirspurnir á tölvupóstfang bókasafnsins bsha@unak.is.
Bæklingur um þjónustu við fjarnema


