Markmiðslýsing
Markmið kennslu og þjálfunar í upplýsingalæsi við Bókasafn Háskólans á Akureyri er að tryggja að nemendur séu læsir á upplýsingar.
Samkvæmt skilgreiningu amerísku bókavarðasamtakanna er upplýsingalæs einstaklingur sá sem veit hvenær upplýsinga er þörf og hefur yfir að ráða færni til að finna þær, meta gildi þeirra og hagnýta þær. Upplýsingalæs einstaklingur hefur lært hvernig á að læra og afla sér þekkingar en það er einnig mikilvægt að hann geti nýtt sér þessa þekkingu í framtíðinni. Færni í upplýsingalæsi stuðlar að og er góður undirbúningur fyrir símenntun einstaklingsins.
Hlutverk fræðslunnar er að kynna bókasafnið fyrir nemendum og þær upplýsingalindir, stafrænar og prentaðar, sem það veitir aðgang að og kenna þeim að nýta sér þær meðan á háskólanámi þeirra stendur. Einnig er lögð áhersla á mat á gæðum upplýsinga og að nemendur geti valið úr og notað þær á markvissan hátt.
Lögð er áhersla á að bjóða öllum nemendum háskólans kennslu og þjálfun í upplýsingalæsi bæði við upphaf náms og einnig síðar, t.d. vegna vinnu við lokaverkefni. Markmið hennar skal ávallt vera að stuðla að því að nemendur, nær og fjær, öðlist færni í upplýsingalæsi og verði sem fyrst sjálfbjarga í heimilda- og upplýsingaleitum.
Velgengnisvika
Strax í fyrstu viku fyrsta námsmisseris, í svokallaðri velgengnisviku, fá nemendur kynningu á þjónustu, safnkosti og les- og vinnuaðstöðu bókasafnsins. Nemendur fá kennslu í Gegni, einnig er heimasíða bókasafnsins kynnt og stutt sýnikennsla á þeim gagnasöfnum og stafrænu tímaritum sem bókasafnið hefur aðgang að. Í lokin gera nemendur verklegar æfingar undir handleiðslu leiðbeinanda.
Kennslustundir í upplýsingalæsi
Notendafræðslan fer einnig fram í kennslustundum í upplýsingalæsi sem tengdar eru við ákveðin námskeið í kennsluskrá. Námskeiðin eru valin í samráði við kennara deilda. Kennurum sem hafa áhuga á slíkri samvinnu er vinsamlegast bent á að hafa samband við starfsfólk bókasafns. Stefnt er að því að a.m.k. eitt námskeið á hverju námsári tengist upplýsingalæsiskennslunni. Þegar nemendur hafa valið sér kjörsvið á öðru eða þriðja ári þá miðast kennslan við sérhæfð gagnasöfn og heimildaleitir á þeirra efnissviði. Kennslan á þriðja/fjórða ári miðast við undirbúning að lokaverkefnum nemenda.
Námskeið og stuðningsefni
Auk kennslustunda í upplýsingalæsi er boðið upp á námskeið og verklegar æfingar í ákveðnum gagnasöfnum og forritum ef nemendur vilja afla sér aukinnar þekkingar eða til upprifjunar.
Starfsfólk
Kennarar og annað starfsfólk háskólans geta einnig óskað eftir safnkynningum og námskeiðum í einstökum gagnasöfnum. Vinsamlega hafið samband við umsjónarmann.
Umsjónarmaður kennslu og þjálfunar í upplýsingalæsi er Astrid Margrét Magnúsdóttir
Sími 460 8051 - Símbréf 460 8994


