Háskólinn á Akureyri

Bókasafnið er opið öllum og lánsrétt hafa þeir sem hafa íslenska kennitölu.

Útlán

ÚtlánBókasafnið er opið öllum og lánsrétt hafa þeir sem hafa íslenska kennitölu. Lánþegaskírteini fyrir nemendur háskólans, sem jafnframt eru aðgangskort að húsum skólans, nemendaskírteini og ljósritunarkort, eru gefin út til eins árs í senn. Skírteinin fást afhent í afgreiðslu gagnasmiðju nemendum að kostnaðarlausu. Skírteini annarra lánþega en nemenda gildir í eitt ár frá útgáfudegi og fást í afgreiðslu bókasafnsins. Þau kosta 1000 krónur. Starfsmenn Háskólans á Akureyri og starfsmenn grunn- og leikskóla á Norðurlandi eystra fá lánþegaskírteinið án endurgjalds.

Lánþegi ber ábyrgð á þeim gögnum sem hann fær að láni á bókasafninu. Glatist eða skemmist gögn í vörslu lánþega áskilur bókasafnið sér rétt til að innheimta hjá honum bætur fyrir það.

Lánþega ber ávallt að framvísa lánþegaskírteini þegar hann fær lánuð gögn. Þetta á einnig við um handbækur og önnur gögn sem ætluð eru til notkunar á bókasafninu.

Lánþegar geta skoðað lán sín í Gegni með því að skrá sig inn á Mínar síður. Lánþegi skráir kennitölu/númer og lykilorð undir fyrirsögninni innskráning. Ef vandræði koma upp við innskráningu vinsamlega hafið samband við bókaverði.

Lánstími
Lánstími flestra gagna er 30 dagar.
Myndbönd eru lánuð út í 14 daga og margmiðlunarefni í 7 daga en handbækur og tímarit eru ekki lánuð út af safninu.

Gögn á námsbókasafni eru á svonefndum skammtímalánum. Um er að ræða vikulán, þriggja daga lán og dægurlán (sólarhringslán). Skammtímalánsbækur er hvorki hægt að endurnýja né taka frá.

Starfsmenn Háskólans á Akureyri geta fengið að láni bækur sem þeir styðjast mikið við, til dæmis í kennslu eða rannsóknum, til lengri tíma. Þá annast bókaverðir endurnýjanir bókanna eftir samkomulagi og er viðkomandi því aðeins krafinn um skil ef annar lánþegi er á biðlista. Einnig kemur til greina að nemendur sem vinna að lokaritgerð geti fengið lengri lánstíma í samráði við bókaverði. Lánþegi þarf að hafa samband við afgreiðslu bókasafnsins og tilgreina hvaða gögn hann óskar eftir að verði á langtímaláni. 

Frátektir lána
Í Gegni kemur fram hvaða skilmálar gilda um lán á einstökum gögnum (hverju eintaki fyrir sig).
Séu gögn í útláni getur lánþegi með gilt lánþegaskírteini sjálfur tekið þau frá í Gegni eða óskað eftir því við afgreiðslu bókasafnsins. Hann fær þá tilkynningu frá bókasafninu þegar hann getur sótt þau.

Endurnýjun lána
Endurnýjun lána er heimil á gögnum ef enginn lánþegi hefur skráð sig á biðlista eftir þeim, þó aldrei oftar en tvisvar sinnum.  Endurnýjanir geta lánþegar framkvæmt sjálfir á vef Gegnis - Mínar síður.  Einnig er hægt að endurnýja lán símleiðis í síma 460 8060 eða með tölvupósti bsha@unak.is

Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Guđrún S. Magnúsdóttir

„Öll ákvarđanataka í HA er vel kynnt nemendum og tekin međ hagsmuni ţeirra ađ leiđarljósi.“

Jóhanna Guđrún S. Magnúsdóttir nemandi í lögfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf