Háskólinn á
Akureyri býður upp á 180 ECTS eininga nám til B.A.-gráðu í félagsvísindum með sérhæfingu á tilteknum sviðum.
Námið byggir einkum á félagsfræði, mannfræði og stjórnmálafræði og veitir nemendum traustan grunn í kenningum og
aðferðafræði þeirra fræðigreina. Námið er sambærilegt við B.A.-nám í einstökum undirgreinum félagsvísindanna
við aðra innlenda og erlenda háskóla. Jafnframt geta nemendur lagt sérstaka áherslu á byggðafræði, ferðamálafræði,
kynjafræði, norðurslóðafræði eða æskulýðsfræði í náminu.
Margvíslegir möguleikar
Langflest námskeið eru kennd á íslensku en nemendum gefst einnig kostur á allmörgum valnámskeiðum á ensku. Nemendur geta tekið hluta
námsins erlendis eða við aðra háskóla á Íslandi eða fengið nám frá öðrum háskólum metið til eininga.
Nemendur öðlast mikilvæga þekkingu á íslensku samfélagi jafnt sem hnattvæddum heimi og trausta undirstöðu í kenningum og
aðferðafræði félagsvísindanna. Reynslan hefur sýnt að brautskráðir nemendur eru eftirsóttir á vinnumarkaði og hafa forskot
í framhaldsnámi á háskólastigi.
Áhersla á rannsóknir
Auk formlegra
aðferðafræðinámskeiða fá nemendur umtalsverða þjálfun í skipulagningu og framkvæmd rannsókna og framsetningu á
niðurstöðum fyrir almenning og fræðimenn. Gagnasöfn viðamikilla alþjóðlegra og innlendra rannsókna standa nemendum í
félagsvísindum jafnframt til boða og margvísleg tækifæri gefast til náinnar samvinnu kennara og nemenda við slíkar rannsóknir.
Framhaldsnám
B.A.-próf í félagsvísindum er
góður grunnur fyrir framhaldsnám í fjölmörgum greinum félagsvísinda. Nemendum með B.A.-próf í félagsvísindum gefst
jafnframt kostur á rannsóknartengdu meistaranámi í félagsvísindum við HA. Nemendur í slíku námi ljúka einu misseri af
námskeiðum á meistarastigi við HA eða aðra viðurkennda háskóla, en námið felst að stærstum hluta í viðamiklu
rannsóknarverkefni undir leiðsögn reyndra rannsóknarmanna.
|
„Námið býður upp á afar athyglisverða og þverfaglega nálgun sem hefur nýst vel í framhaldsnámi sem og einstaka upplifun í námstengdum ferðum til Síberíu og Grænlands. Að námi loknu fékk ég styrk frá North to North Mobility Program til vetursetu í University of Northern British Columbia í tengslum við Háskóla Norðurslóðanna (The Arctic University), lauk að því loknu M.Sc.- námi í London School of Economics and Political Science. Ég fór síðan í heimskautarétt við HA. Það er engin spurning að námið í félagsvísindadeild HA leiddi mig á skemmtilegri brautir en mig hafði órað fyrir.“ Embla Eir Oddsdóttir |
![]() |



