Almenn lýsing námsins
Boðið er upp á rannsóknatengt framhaldsnám til M.A. prófs í félagsvísindum. Námið tekur tvö ár og er 120 eininga alþjóðlegt rannsóknatengt meistaranám, þar sem 90 einingar eru sjálft meistaraverkefnið, og 30 einingar í námskeiðum. Námskeiðshluta meistaranámsins tekur nemandinn við Háskólann á Akureyri, við aðra innlenda háskóla eða erlenda háskóla samkvæmt ákvörðun meistaraprófsnefndar hverju sinni. Meistaraprófsverkefnið tengist að jafnaði rannsóknarverkefnum sem kennarar vinna hverju sinni. Megináherslan er á meistaraverkefnið og að nemendur tileinki sér vísindaleg vinnubrögð.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði er B.A. gráða frá viðurkenndri háskólastofnun með fyrstu einkunn í námsgrein sem tengist fyrirhuguðu meistaranámi.
Inntak og skipulag
Rannsóknatengt meistaranám gefur kost á því að sérsníða nám að áhuga og þörfum einstakra nemenda í samræmi við sérhæfingu einstakra kennara. Námið byggir að stærstum hluta á umfangsmikilli rannsóknarvinnu í nánu samstarfi við leiðbeinanda. Inntak námskeiða hjá hverjum nemenda er ákveðið af sérstakri meistaraprófsnefnd í samræmi við sérsvið nemandans og viðfangsefni meistaraprófsritgerðar.
Nemandi finnur sér leiðbeinanda og saman setja þeir upp rannsóknaráætlun og leita styrkja til verkefnisins. Auk þess er skipuð nefnd sem ber ábyrgð á námsframvindu nemandans, þar sem sitja leiðbeinandinn auk tveggja annarra. Áður en nemandi getur hafist handa skulu eftirfarandi liggja fyrir: Rannsóknaráætlun, kostnaðaráætlun, yfirlit fyrirhugaðra námskeiða, birtingaáætlun. Umsjónakennarar námskeiða og leiðbeinendur meistaraverkefna skulu að jafnaði hafa doktorspróf eða dósentshæfi. Náminu lýkur með opinberri meistaraprófsvörn með skipuðum prófdómara sem ekki hefur setið í verkefnisnefnd viðkomandi nemanda. Félagsvísindadeild gefur út nánari reglur og leiðbeiningar um meistaraprófsritgerðina.
Meistaraprófsnefnd
Meistaraprófsnefnd hefur það hlutverk að samþykkja áætlun meistaranemans um samsetningu námskeiða og rannsóknarverkefni. Í henni sitja leiðsögukennari og tveir sérfræðingar á viðkomandi sviði. Leiðsögukennarinn skal vera fastráðinn dósent eða prófessor við HA.
Að námi loknu
Námið nýtist vel sem undirbúningur fyrir doktorsnám eða sjálfstæða rannsóknarvinnu. Það getur einnig nýst til margvíslegra starfa hjá opinberum aðilum eða einkafyrirtækjum.


