Auðlindadeild býður upp á grunnnám
í náttúru- og auðlindafræðum, eftirtaldar námsleiðir eru í boði:
• Líftækni B.S.
• Sjávarútvegsfræði B.S.
• Náttúru- og auðlindafræði (Diplóma)
Einkenni námsins er þverfagleg nálgun þar sem saman fara nám og rannsóknir í raunvísindum og tæknigreinum samhliða áherslum á hagfræði, stjórnun og markaðsfræði. Slík menntun er forsenda góðrar auðlindastjórnunar og skipulags sem ýtir undir sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun.
Hvar verður námið í boði?
Námið er í boði óháð staðsetningu.
Nám og kennsla
Við miðlun námsins verður mest stuðst við rafræn kennslukerfi,
heimasíður kennara og upptökur úr staðarnámi. Í þeim námskeiðum sem eru samkennd með viðskiptafræði fer kennsla fram um
myndfundabúnað. Kennsla í verklegum þáttum námskeiða fer fram í lotum, tvisvar sinnum ein vika á misseri en þá er nauðsynlegt
að nemendur komi til Akureyrar.
Hvenær er kennt?
Kennsla er að mestu leyti óháð stund og stað. Þau námskeið sem kennd eru
á myndfundum eru að jafnaði eftir kl. 17:00 á virkum dögum eða á laugardögum.
Hópstærðir
Almennt verður námskeið ekki kennt nema heildarfjöldi skráðra nemenda í
námskeiðinu sé a.m.k. tíu.
Upplýsingar
Nánar má lesa um námskipulag hverrar námsbrautar með því að smella
á heiti þeirra hér ofar á síðunni og upplýsingar veitir Ása Guðmundardóttir, skrifstofustjóri viðskipta- og
raunvísindasviðs, í síma 460 8037, netfang: asa@unak.is.


