Veturinn 2012-2013 verður
boðið upp á fjarnám í félagsvísindadeild. Þar með verður hægt að skrá sig í fjarnám til B.A.-prófs
í:
• Félagsvísindum
• Fjölmiðlafræði
• Sálfræði
• Nútímafræði
Nám og kennsla
Fjarnámið í félagsvísindadeild verður kennt samhliða staðarnámi
og verða fyrirlestrar teknir upp og settir á heimasíðu viðkomandi námskeiða. Samskipti fara að öðru leyti fram í gegnum heimasíður
námskeiðanna og netkennslukerfi tengd þeim. Þess utan verður gerð krafa um að fjarnemar komi á hverju misseri í sérstakar námslotur sem
verða haldnar í húsakynnum Háskólans á Akureyri.
Námslotur á Akureyri eru hluti af námskeiðum í félagsvísindadeild og er ætlast til að nemendur mæti í þær. Ef um
forföll er að ræða eða mjög sérstakar aðstæður þarf að senda sérstakt erindi fyrir í námsnefnd. Nemendur sem forfallast
eða þurfa af einhverjum ástæðum undanþágu frá þátttöku í námslotu geta átt von á að slíkt komi
fram í námsmati. Hvernig og hversu mikil áhrif fjarvera úr námslotu hefur á námsmat fer eftir námskeiðum og er slíkt kynnt í
kennsluáætlunum viðkomandi námskeiðs.
Kröfur og hópastærðir
Skilyrði fyrir því að nemendur geti stundað fjarnám við
félagsvísindadeild er að nemendur séu í góðu tölvusambandi og geti komið í námsloturnar sem haldnar eru á Akureyri. Ekki er
gerð krafa um tiltekinn fjölda nemenda á hverjum stað en deildin áskilur sér rétt til að setja þak á fjölda fjarnema sem teknir eru inn
ef þörf krefur.
Upplýsingar
Nánari upplýsingar um námskipulagið fást með því að smella
á heiti námsleiðanna hér ofar á síðunni. Frekari upplýsingar veitir Heiða Kristín Jónsdóttir, skrifstofustjóri hug-
og félagsvísindasviðs, í síma 460 8039, netfang: hkj@unak.is.


