(Kennarafræði M.Ed.
frá 2012)
Fyrst var boðið upp á nám í kennarafræðum við Háskólann á Akureyri árið 1993. Það stendur því á traustum grunni um leið og það er í stöðugri þróun. Nám til B.Ed.-gráðu er þriggja ára fullt nám í fjarnámi. Í beinu framhaldi af því geta nemendur síðan skráð sig í nám til M.Ed.-gráðu sem er forsenda kennsluréttinda. Það nám tekur tvö ár í fullu námi í fjarnámi og verður í boði frá og með haustinu 2012.
Áherslur í námi í kennarafræði
Leiðarstef náms í kennaradeild hug-
félagsvísindasviðs HA er gagnrýnin hugsun og ígrundað starf. Markmið deildarinnar er að mennta kennara sem hafa trausta þekkingu á
undirstöðuþáttum kennarastarfsins og geta tekist á hendur þau uppeldishlutverk sem kennsla leggur þeim á herðar um leið og þeir eru
færir um að þróa og móta skóla sem menntasamfélag í síkviku umhverfi. Áhersla er lögð á verklega þjálfun
með vettvangsnámi.
Nám og kennsla
Kennsla fer ýmist fram í staðbundnum námslotum á Akureyri eða um
myndfundabúnað. Þess utan er námið vefstutt fjarnám þar sem nemendur nýta sér heimasíður og rafræn kennslukerfi. Gera má
ráð fyrir að mætingaskylda sé í ákveðnum námskeiðum.
Hvenær er kennt?
Kennsla um myndfundabúnað fer að mestu fram á dagvinnutíma samkvæmt
stundaskrá, en samkvæmt ákvörðun kennara þegar um verkefni í rafrænu kennslukerfi er að ræða. Gera má ráð fyrir að
hvert misseri hefjist með námslotu á Akureyri en nákvæm tímasetning annarra lotna verður auglýst sérstaklega. Tímasetningin er breytileg
eftir misserum.
Hópstærðir
Ekki er gerð krafa um tiltekinn fjölda nemenda á hverjum stað, en það er kostur
fyrir nemendur ef þeir geta stundað námið saman og notið aðstöðunnar hjá þeim fræðslu- og símenntunarmiðstöðum sem eru
í samstarf við HA.
Upplýsingar
Nánar má lesa um námskipulagið með því að smella hér og upplýsingar veitir Heiða
Kristín Jónsdóttir, skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasviðs, netfang hkj@unak.is. Einnig má
senda fyrirspurnir á kennaradeild@unak.is.


