Háskólinn á Akureyri

Fullveldishátíđ 1. desember 2011 viđ Háskólann á Akureyri Boðið verður upp á viðamikla dagskrá í

Fullveldishátíđ 1. desember 2011 viđ Háskólann á Akureyri

ÍslandsklukkanBoðið verður upp á viðamikla dagskrá í Háskólanum á Akureyri þann 1. desember. Dagskráin hefst á málþingi sem er tileinkað stjórnlagaráðinu og nýrri stjórnarskrá og að því loknu hefst dagskrá við Íslandsklukkuna.

Kl. 13:30 – 16:00: Stjórnarskrá í mótun - Hvernig lítur hún út?
Málþing í stofu M102, frummælendur eru: Salvör Nordal, Oddný Mjöll Arnardóttir, Jón Ólafsson, Björg Thorarensen og Ágúst Þór Árnason. Fundarstjóri er Guðmundur H. Frímannsson. Sjá nánar hér.

Kl. 16:15 Hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna. Klukkunni verður hringt 11 sinnum fyrir árið 2011 af Kristínu Ástgeirsdóttur, jafnréttisstýru. Barnakór Giljaskóla syngur inn jólamánuðinn.

Kl. 16:30 Í anddyri háskólans, Miðborg verður boðið upp á kakó og smákökur og barnakór Giljaskóla syngur jólalög. Á bókasafni háskólans verður opnuð sýningin Íslenskt landsslag og blóm. Listaverkin eru í eigu Háskólans á Akureyri eftir listamannahjónin Karen Agnete Þórarinsson og Svein Þórarinsson. Sýningarstjóri er Guðmundur Ármann Sigurjónsson.

Komið og eigið góða stund í háskólanum og hefjið jólamánuðinn á huggulegum nótum!


Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jón Ingi Björnsson

„Ţverfagleiki náms viđ HA gerir manni kleift ađ sjá hlutina í nýju ljósi. Ég sé ekki eftir ţví ađ hafa valiđ HA. “

Jón Ingi Björnsson sjávarútvegsfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf