Háskólinn á Akureyri

Alţjóđadagur lćsis 8. september Alþjóðadagur læsis er 8. september. Háskólinn á Akureyri,

Alţjóđadagur lćsis 8. september

Dagur læsisAlþjóðadagur læsis er 8. september. Háskólinn á Akureyri, Amtsbóksafnið og Akureyrarstofa standa að undirbúningi á degi læsis á Íslandi og eru landsmenn hvattir  til að leggja frá sér verk og lesa fyrir sig og aðra kl. 11:00–11:15. Ennfremur er fólk hvatt til þess að skipuleggja sjálft læsisviðburði. Það má  gera með því að lesa upp fyrir hvert annað, segja sögur, fara með ljóð eða á annan hátt nota málið til ánægjulegra samskipta. Hugmyndahefti um læsisviðburði má nálgast hér.

Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1965 helgað þennan dag málefnum læsis en læsi er nú skilgreint af SÞ sem  grunnlífsleikni. Íslendingar hafa getað boðið börnum sínum tækifæri til lestrarnáms en til að viðhalda lestrarfærni þarf að iðka lestur. Þess er vænst að landsmenn íhugi þau lífsgæði sem felast í því að geta lesið og tjáð sig í rituðu máli. Á degi læsis 8. september bjóða samstarfsstofnanir um dag læsis upp á:

Ráðstefnur um læsi. Háskólinn á Akureyri stendur fyrir tveimur ráðstefnum um læsi 10. og 11. sept. Sjá dagskráhér og hér.

Framhaldssögu fyrir börn. Goðsögnin um tár Litla hestsins, stendur öllum dagblöðum og vikublöðum til boða. Alþjóðasamtök blaðaútgefenda WAN gefa söguna og teikningar en þýðingin er í boði starfsmanna HA og Amtsbókasafnsins.

Sýningu í bæjarstjórnarsalnum. Akureyringum er boðið í Gallerí Ráðhús 8. september til að koma á framfæri óskum sínum til handa bæjarbúum fyrir næstu fimm árin.

Hugmyndahefti um viðburði á degi læsis sjá fyrr í þessari frétt.

 

 



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hákon Örn Hafţórsson

„HA veitir nemendum góđa ađstöđu til náms og mér líđur vel í bćđi áhugaverđu og krefjandi námi sem kennarafrćđin er.“

Hákon Örn Hafţórsson kennaranemi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf