Ráðstefnan Alvara málsins - Bókaþjóð í ólestri var haldin laugardaginn 21. janúar í Norræna húsinu. Þar var meðal annars fjallað um niðurstöður rannsókna sem sýna að ört stækkandi hópur ungs fólks getur ekki lesið sér til gagns eða gamans. Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Guðmundur Engilbertsson og Brynhildur Þórarinsdóttir, en bæði gegna stöðu lektors við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Fjallað var um erindi þeirra á vef Ríkisútvarpsins.
Fyrirlestur Brynhildar bar heitið Lestrarhestamennska - heillandi
fjölskyldusport og þar skýrði hún frá rannsóknum sínum á því hvað einkenndi uppeldi svokallaðra lestrarhesta,
sjá nánar hér.
Fyrirlestur Guðmundar bar heitið Lestur er bæði yndisleg og uppbyggileg iðja og hann segir læsi
nauðsynlegt þeim sem vilja viða að sér þekkingu, sjá nánar
hér.



