
Háskólinn á Akureyri býður nemendur sem hefja nám nú um
áramót velkomna í háskólann. Nýnemum er bent á að skrá sig inn á sína Stefaníu en þar er að finna
upplýsingar um tölvukerfi háskólans ásamt fleiri hagnýtum upplýsingum sem vert er að kynna sér áður en kennsla hefst.
Nánari upplýsinga má leita á þjónustuborði háskólans eða hjá skrifstofustjórum fræðasviða:
Skrifstofustjóri heilbrigðisvísindasvið er Ingibjörg Smáradóttir, sími 460-8036
Skrifstofustjóri hug- og félagsvísindasvið er Heiða Kristín Jónsdóttir, sími 460-8039
Skrifstofustjóri viðskipta- og raunvísindasviðs er Ása Guðmundardóttir, sími 460-8037