Frá RES Orkuskóla á Akureyri (RES – the School for Renewable Energy Science) í
samvinnu við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands voru brautskráðir 35 nemendur frá 11 þjóðlöndum með
M.Sc. gráðu í endurnýjanlegum orkufræðum föstudaginn 19. febrúar. Þetta er önnur brautskráning frá skólanum.
Námið hefur staðið í samfleytt eitt ár og luku nemendurnir prófum af fjórum námsbrautum. Tveir íslenskir nemendur voru að þessu
sinni í útskriftarhópi en innlendum nemendum fjölgar jafnt og þétt. Þrír nemendur úr útskriftarhópnum fengu viðurkenningar
fyrir námsárangur yfir 9 í meðaleinkunn, sem er til marks um hversu sterkir námsmenn sækja skólann en kröfur í náminu eru mjög
miklar.
Að kennslu í RES Orkuskóla koma 65 kennarar, sem eru bæði innlendir og erlendir prófessorar og fræðimenn. Skólinn hefur nána samvinnu við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og veita háskólarnir tveir sameiginlega þá meistaraprófsgráðu sem nemendur fá.
Dr. Björn Gunnarsson, forstöðumaður RES Orkuskóla, segir skólann stöðugt að festa sig í sessi og skapa sér nafn fyrir einstakt nám á heimsvísu. RES hefur samstarfssamninga við um 35 erlenda háskóla og í gegnum þau tengsl koma nemendur að skólanum. Líkt og á síðasta ári eru Pólverjar fjölmennastir í útskriftarhópnum en áhugi á skólanum fer greinilega vaxandi í háskólunum í Norður-Ameríku, sem skilað hefur fjölgun nemenda af því heimssvæði.
Orkuvörður ehf. á og starfrækir RES Orkuskóla. Hluthafar í Orkuvörðum eru Þekkingavörður ehf., RARIK, KEA, Gift fjárfestingarfélag, Landsvirkjun, Norðurorka, Akureyrarbær og Landsbanki Íslands. Eins og áður segir eru Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri meðal nánustu samstarfsaðila skólans, að ótöldum tugum háskóla víða um heim.

Íslensku meistararnir í endurnýjanlegum orkufræðum sem útskrifuðust þau Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir og Ívar Baldvinsson.



