Háskólaárið 2009-2010 stunduðu um 1500 nemendur nám í þremur sviðum við
Háskólann á Akureyri. Ríflega þriðjungur þeirra stundaði fjarnám á u.þ.b. 20 stöðum á landinu.
Í ár voru 376 kandídatar brautskráðir á háskólahátíð sem haldin var í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 12. júní. Athöfnin þótti takast vel og var öll hin glæsilegasta. Meðal brautskráðra hafa margir stundað fjarnám fyrir milligöngu háskólasetra og símenntunarmiðstöðva á 10 stöðum á landinu. Flestir komu frá Reykjanesbæ, Hafnarfirði, Selfossi/Árborg og Ísafirði. Þess má einnig geta að meðal brautskráðra kandídata voru kandídatar frá Norður-Ameríku, Asíu, Afríku og Evrópu.
Skipting kandídata eftir deildum var eftirfarandi:
Heilbrigðisdeild: 76
Hug- og félagsvísindadeild: 214
Viðskipta- og raunvísindadeild: 86
Konur eru í miklum meiri hluta þeirra sem brautskráðust eða 288 en karlar eru 88 eða um 25%.
Viðurkenningu fyrir góðan námsárangur hlutu eftirtaldir:
Auðlindafræði - Jón Helgi Sveinbjörnsson
Félagsvísindi - Baldur Ingi Jónasson
Grunnskólakennarafræði - Sigrún Árnadóttir
Hjúkrunarfræði - Eva Mjöll Júlíusdóttir
Iðjuþjálfunarfræði - Guðrún Soffía Viðarsdóttir
Leikskólakennarafræði - Karitas Jónsdóttir
Menntunarfræði (M.ED) - Sigurlaug Elva Ólafsdóttir
Lögfræði - Gunnþóra Elín Erlingsdóttir
Tölvunarfræði - Unnar Freyr Hlynsson
Viðskiptafræði - Arnhildur Ásdís Kolbeins
Háskólinn á Akureyri óskar öllum brautskráðum kandídötum innilega til hamingju með árangurinn og daginn.
Hér má sjá lista yfir þá sem brautskráðust frá Háskólanum á Akureyri 2010.
Hér má sjá myndir frá brautskráningunni



