Miðvikudaginn 2. júní, stofu K201 á
Sólborg kl. 12:00-13:00 verður málstofa í auðlindadeild. Þar mun Rannveig Björnsdóttir, dósent við HA og fagstjóri hjá
Matís kynna doktorsverkefni sitt í Líf- og læknavísindum.
Stefán B. Sigurðsson rektor Háskólans á Akureyri mun ávarpa samkomuna og boðið verður upp á léttar veitingar.
Doktorsverkefni Rannveigar ber nafnið:Bakteríuflóra á fyrstu stigum lúðueldis (The bacterial community during early production stages of intensively reared halibut, Hippoglossus hippoglossus L.)
Niðurstöður doktorsverkefnisins varpa skýrara ljósi á þróun bakteríuflóru á fyrstu stigum lúðueldis og hugsanleg áhrif samsetningar flórunnar á lifun og þroska frá frjóvgun eggja til loka startfóðrunar. Mikil og skyndileg afföll eru vandamál á þessum fyrstu og viðkvæmustu stigum eldisins og ekki hvað síst fyrstu vikurnar í fóðrun þegar lirfurnar þurfa á lifandi fóðurdýrum að halda. Niðurstöður sýna ennfremur að breytingar á umhverfisþáttum höfðu veruleg áhrif á fjölda og samsetningu bakteríuflórunnar þar sem unnt reyndist að örva ósérhæft ónæmi lirfa við meðhöndlun fæðudýra með vatnsrofnum fiskipróteinum og bætt lifun fékkst við meðhöndlun fóðurdýra með bakteríustofnum sem voru ríkjandi í meltingarvegi lirfa með góða afkomu. Niðurstöður benda einnig til þess að ríkjandi hluti flóru lirfa og fóðurdýra þeirra geti að stórum hluta verið ræktanlegur.
Leiðbeinandi: Dr. Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir, rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands
Doktorsvörnin fór fram við Læknadeild Háskóla Íslands þann 9. apríl síðastliðinn og skipuðu eftirfarandi doktorsnefndina:
Dr. Eva Benediktsdóttir, dósent við Háskóla Íslands
Dr. Helgi Thorarensen, prófessor við Háskólann á Hólum
Dr. Jakob K Kristjánsson, forstjóri Prokazyme Ltd.
Dr. Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís ohf.
Andmælendur voru:
Dr. Brian Austin, framkvæmdastjóri Fiskeldisstofnunarinnar við Háskólann í Stirling Skotlandi
Dr. Gunnsteinn Ægir Haraldsson, kennslustjóri rannsóknatengds náms við Læknadeild Háskóla Íslands.
Þess má geta að verkefnið var unnið í samstarfi Matís ohf. og Háskólans á Akureyri og í nánu samstarfi við Fiskey hf. Aðrir samstarfsaðilar voru Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, Háskólinn í Tromsø í Noregi, Iceprotein ehf. og Háskólinn á Hólum.
Verkefnið var styrkt af Tækniþróunarsjóði Rannís, AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi, Líftæknineti í auðlindanýtingu, Rannsóknasjóði Háskólans á Akureyri og Háskólasjóði KEA.



