Þriðjudaginn 7. september mun Dr. Claus Nygaard prófessor og framkvæmdastjóri
rannsókna við Copenhagen Business School (CBS) heimsækja Háskólann á Akureyri og vinna með gæðaráði, stjórnendum
fræðasviða, deilda og námsbrauta og fulltrúum nemenda.
kl.13.00 í N102 flytur hann fyrirlestur sem hann nefnir „A Learning Strategy as a Possible Vehicle for Branding Universities” og að honum loknum mun hann leiða umræður um stefnu HA sem lítur að námi og hvernig hægt er að móta staðblæ meðal nemenda og starfsmanna. Claus mun m.a. fjalla um tvær greinar sem áhugavert er fyrir þá sem á hann ætla að hlusta að lesa. Þær má nálgast hér og hér.
CBS er leiðandi háskóli í Evrópu og hefur gæðastarf hans sem Claus hefur átt ríkan þátt í að móta hlotið verðlaun og viðurkenningar á undanförnum árum. Við CBS eru nemendur og nám í fyrirrúmi og þar hefur mönnum tekist sérstaklega vel að efla gæði og þróa gæðameðvitund meðal nemenda og starfsmanna.



