Háskólinn á Akureyri

Stórkostleg ný tćkifćri í ferđaţjónustu á Norđurlandi Opinn fundur verður á Hótel KEA, mánudaginn 8. mars, kl. 10:00 þar

Stórkostleg ný tćkifćri í ferđaţjónustu á Norđurlandi

Möguleikar í ferðaþjónustu kynntir á fundiOpinn fundur verður á Hótel KEA, mánudaginn 8. mars, kl. 10:00 þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknar sem Rannsóknamiðstöð ferðamála við Háskólann á Akureyri gerði sumarið 2009. Gerð var ítarlega könnun meðal brottfararfarþega í flugi Iceland Express frá Akureyraflugvelli. Var þetta í fyrsta sinn sem slík rannsókn hefur verið gerð og var hún unnin í náinni samvinnu við Flugstoðir.

Í könnuninni var spurt um ferðavenjur, neyslumynstur og upplifun þeirra erlendu gesta sem fara frá Íslandi um Akureyraflugvöll og ferðamynstur þeirra um Norðurland kortlagt. Var könnunin sett upp í sex hlutum. Í fyrsta lagi voru nokkrar almennar spurningar um Íslandsferð svarenda, sem gefa gleggri mynd af ferðamynstri þátttakenda um áfangastaðinn Ísland. Í þessum hluta var t.a.m. spurt um tilgang ferðar, ferðafélaga, dvalarlengd, hvar viðkomandi komi inn í landið og hvaða landshlutar aðrir en Norðurland voru sóttir heim í ferðinni. Í öðru lagi voru sérstakar spurningar sem er ætlað að gefa vísbendingar um ferðamynstur farþeganna um Norðurland á meðan á Íslandsdvöl stóð. Hér var sérstaklega spurt um hvaða staðir/svæði á Norðurlandi voru heimsótt, fjölda gistinátta, gistimáta, samgöngumáta og  nýtta afþreyingu. Í þriðja lagi var spurt um helstu útgjaldaliði. Í fjórða lagi voru spurningar um gæði og upplifun þátttakenda af Norðurlandi og þjónustu þar. Í fimmta lagi voru spurningar um upplýsingaþörf og -notkun þátttakenda könnunarinnar bæði fyrir ferð og í ferðinni. Í sjötta og síðasta lagi voru spurningar sem snéru að flugvellinum sjálfum.

Helstu niðurstöður eru þær að þeir erlendu farþegar sem koma og fara gegnum Akureyraflugvöll dveljast mun lengur á Norðurlandi en aðrir erlendir gestir. Nærri helmingur ferðast aðeins um Norðurland og inná Austurland og er því ljóst að með beinu flugi opnast möguleikar á þróun nýs áfangastaðar í ferðaþjónustu, sem við sjáum þegar móta fyrir nú. Einnig er mögulegt útfrá þeim gögnum sem aflað var að áætla tekjur af komum þessara gesta og þannig einnig hvað mörg störf í ferðaþjónustu gætu orðið bein afleiðing millilandaflugsins. 

Dagskrá:

Á fundinum mun Eyrún Jenný Bjarndóttir, sérfræðingur við Rannsóknamiðstöð ferðamála kynna ofangreindar niðurstöður. 

Þá mun Edward H. Huijbens, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar ferðamála velta upp hugmyndum um mikilvægi millilandaflugsins fyrir hagkerfið á Norðurlandi og mögulegri fjölgun starfa í ferðaþjónustu á svæðinu ef framtíðaráform ferðaþjónustunnar ná fram að ganga um heilsársflug milli Evrópulanda og Akureyrar.

Einnig mun Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur við Háskólann á Akureyri, skoða í stuttu erindi helstu aðdráttaröfl ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Að lokum verða umræður og fyrirspurnir en í pallborði sitja Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, Svanhildur Konráðsdóttir, formaður ferðamálaráðs og frummælendur.

Fundi stýrir Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður.



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Áslaug Karen Jóhannsdóttir

„Fjölmiđlafrćđin er ný og spennandi námsgrein og ţess vegna valdi ég hana.“

Áslaug Karen Jóhannsdóttir blađamađur á Skessuhorni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf