Kristín Dýrfjörð lektor við kennaradeild HA var nýlega endurkjörin
formaður SARE, Samtaka áhugafólks um starf í anda Reggio Emilia. Í samtökunum eru m.a. á fjórða tug leikskóla. Föstudaginn 26.
febrúar stóðu samtökin fyrir árlegum Skólaþróunardegi í Hafnarfirði þar sem yfir 250 starfsmenn leikskóla mættu til
að miðla starfi sínu, rökræða og hlusta. Samfélagið í nærmynd var með beina útsendingu frá
Skólaþróunardeginum. Þar sem meðal annars er rabbað við Kristínu tvisvar í upphafi þáttar og í lok hans. Hægt er að hlusta á þennan áhugaverða þátt um starf leikskóla
hér.
Þeir sem vilja kynna sér starf SARE er bent á vefinn http://www.sare.is/



