Klukkan sem prýðir Miðborg er gjöf frá FSHA og Góðvinum HA og
var afhent við hátíðlega athöfn við vígslu nýbyggingarinnar þann 28. ágúst 2010. Klukkuverkið hefur verið uppi um
þónokkurn tíma en þann 16. janúar sl. var lögð lokahönd á uppsetningu klukkunnar þegar umgjörðin var kláruð. Klukkan
sýnir heiti eykta, gamals tímatals sem horfið hefur að mestu úr daglegu máli.
Samkvæmt fornri reglu var sólahringnum skipt í átta eyktir sem hver um sig eru þrjár klukkustundir. Á Vísindavefnum segir að orðið eykt merki þrjár stundir en sé einnig notað um tímann milli 15:30 og 16:30. Rót orðsins hefur sennilega merkt „dráttardýr" og upphafleg merking orðsins var „tíminn sem dráttardýr er spennt fyrir plóg, vagn".
Eyktirnar eru þessar:
ótta kl. 3
rismál kl. 6
dagmál kl. 9
hádegi kl. 12
nón kl. 15
miðaftann kl. 18
náttmál kl. 21
miðnætti kl. 24
Vísindavefurinn http://visindavefur.hi.is/svar.php?id=4343.



